Það eru margir búnir að senda inn greinar um kettina sína og mér finnst svo gaman að lesa þær. Svo mér datt í hug að skrifa grein um köttinn minn, Míu. Fyrir 3 árum fór ég í heimsókn til vinkonu minnar sem var nýbúin að fá kettling frá nágranna sínum, þetta var systir Míu, Bella. Auðvitað langaði mig líka í svo við fórum í heimsókn til að skoða kettlingana. Á meðan voru foreldrar mínir hjá vinkonu minni. Konan sem átti mömmuna var mjög góð og kunni gott ráð til að fá samþykki frá foreldrunum...