Ég myndi taka próteinshake efir morgunbrennsluna líka. Myndi borða meira eftir kvöldæfingarnar, það er mjög mikilvægt að borða þá. Þá ertu að senda orkuna á réttu staðina, og fá orku fyrir næstu æfingu. Þú ert mögulega að æfa of mikið þarna. ( Nema þú sért vön. ) Fylgstu vel með skapinu, orkunni sem þú hefur, hve vel þú sefur, hvort þú sért að fá kvef eða flensu. Ef þú tekur eftir svona atriðum eða svipuðum atriðum, taktu þér þá pásur og chillaðu í nokkra daga. Það er betra en að brotlenda...