Ég segi bravó því ég held að nú hafi verið slegið met hér á Huga. 200 svör! Til þess að fá svona svörun og umfjöllun er ekki málið að skrifa eitthvað af viti, heldur hið gagnstæða, tómt bull og vitleysa, kryddað með öfgum. Það hjálpar að nota sterk orð, kalla menn hálvita og fífl. Og þetta tekst, við sem teljum okkur sæmilega “normal” látum glepjast og fleygjum okkur út í dansinn, og hann dunar og dunar. Niðurstaðan verður alltaf sú sama, vitræn umræða tapar, öfgar, vitleysa og “heimska”...