Afsakaðu b52, vinur. Gleymdi smá atriði. Lestu aftur, ég sagði aðeins álit mitt á Esjunni, EKKI að suðurnesin væru fallegri. Rétt skal vera rétt. Það er hinsvegar ekkert skrítið að mörgum borgarbúum þyki Esjan falleg. Hún er jú eina fjallið ekki satt? Svo leið ekki sá morgun að ekki væri dásamað, í útvarpi allra landsmanna útsýnið yfir Skúlagötuna, sundin og hana, hrúguna þá arna ,af Jóni Múla í ein 40 ár eða hvað þau voru nú mörg. Ég er ekki að vega að Jóni Múla hér, hann var góður, á sinn hátt!