Varðandi vændisþrælahald, þá sé ég ekki að það ætti að vera svo erfitt að sporna gegn því ef yfirvöldum væri alvara, málið er hins vegar að fórnarlömbin eru oftast erlendir ríkisborgarar sem yfirvöldum og kjósendum er nokk sama um. Besta leiðin held ég að væri að gera vændi algerlega löglegt og skylda jafnframt alla sem það stunda til að afla starfsleyfis, lúta eftirliti lögreglu og heilbrigðisyfirvalda, vera í verkalýðsfélagi, borga í lífeyrissjóð osfrv. Þá myndu þrælahaldararnir skera sig...