Gleymt lykilorð
Nýskráning
Sagnfræði

Sagnfræði

4.208 eru með Sagnfræði sem áhugamál
17.290 stig
708 greinar
845 þræðir
44 tilkynningar
3 pistlar
890 myndir
388 kannanir
27.169 álit
Meira

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.156 stig
STAVKA STAVKA 1.090 stig
ritter ritter 576 stig
br75 br75 266 stig
Rembrandt Rembrandt 206 stig
ornbj ornbj 192 stig
MooMoo MooMoo 162 stig

Stjórnendur

98% Verjudet (9 álit)

98% Verjudet Eftir innkomu Bandaríkjanna í stríðið í Evrópu fóru Þjóðverjar að dreifa út niðrandi áróðri um þá eins og aðra. Á þessari mynd sést hvernig Göbbels sagði samborgurum sínum að samfélagið í Bandaríkjunum væri 87-98% “smitað” af gyðingdómi.

Þrumugnýr (8 álit)

Þrumugnýr Árið 1965 hófu Bandaríkjamenn fyrir alvöru stríðsrekstur sinn í Víetnam, sem þeir höfðu verið viðriðnir í nokkur ár á undan.

Ein af fyrstu stór-aðgerðum þeirra var loftárása-hrina sem kölluð var “Rolling Thunder”. Þar spiluðu vélar eins og þessar, F-105 Thunderchief – kölluð “Thud”, stórt hlutverk. En þrátt fyrir tæknilega yfirburði sína, misstu þeir margar vélar, og árangur þessara árása var takmarkaður. Átta ár voru enn í að Bandaríkjamenn gæfust loks upp á brölti sínu í Víetnam, og fyrir þá áttu hlutirnir aðeins eftir að versna.

Sjá meira hér:
http://en.wikipedia.org/wiki/Operation_Rolling_Thunde

Mikhail Gorbachev (2 álit)

Mikhail Gorbachev Einn af þessum stóru í sögu 20. aldar. Síðasti aðalritari kommúnistaflokks Sovétríkjanna og ef ekki hefði orðið valdaránstilraun íhaldsamra flokkshesta og annara innspilandi atburði hefði hann orðið bjargvættur annars deyjndi ríkis.

Ef Sovétríkin hefðu gengið í gegnum sitt perestrojka (og glastnost)eins og önnur svipiuð kommúnistaríki hafa gert eftir hrunið, hefði það eflaust teygt tímaskeið Ráðstjórnarríkjanna um langan tíma.
Lítum bara á hvernig Kína og Víetnam eru að fóta sig eftir að þeir gengu í gegnum sitt Perestrojka, en gott má alltaf bæta.

Meira um efnahags-og lýðræðisbreytingar Gobba á http://en.wikipedia.org/wiki/Glasnost
og http://en.wikipedia.org/wiki/Perestroika

Mao Zedong (14 álit)

Mao Zedong

Þjóðverjar (8 álit)

Þjóðverjar Þýskir hermenn á góðri stundu.

Orrusta sem aldrei varð (25 álit)

Orrusta sem aldrei varð Hér er mynd sem ég birti “ages ago” á flugáhugamálinu, en vakti lítinn áhuga þar. Þannig að ég gef mér það bessaleyfi að endurbirta hana hér ;)


Þetta er ímyndaður loftbardagi sem kannski hefði átt sér stað ef WWII hefði dregist á langinn um 2-3 ár. Vélin sem tapar bardaganum er bresk Gloster Meteor, sem var raunveruleg, fyrsta breska orrustuþotan.

Focke Wulf Super TL var ein af fjölmörgum framúrstefnulegum flugvélum á teikniborðum Þjóðverja í lok stríðsins, og hefði líklega farið í loftið 1946 eða 47 hefði stríðið haldið áfram.

Bæði Sovétmenn og Bandaríkjamenn nýttu sér síðan þessar þýsku rannsóknir við hönnun sína og útkoman varð vélar eins og Mig-15 og F-86.

Meira um þýsku teikniborðs-vélarnar og hvernig þær hefðu orðið, hér: http://www.luft46.com/


Framlenging á styrjöldinni er annars feykilega áhugavert íhugunarefni. Hvernig hefði slíkt getað komið til, og hvernig hefðu hlutir farið þá?

Þýski flugherinn fer aftur í loftið (10 álit)

Þýski flugherinn fer aftur í loftið …menn eru eitthvað latir við að senda myndir hér inn, þannig að ég endurbirti nú aðra mynd af flugáhugamálinu:


Um 1960 voru stofnaðar fyrstu orrustuflugsveitir hins nýja Vestur-Þýska flughers (sem nefndist Luftwaffe eins og fyrirrennarinn). Fyrst í stað notaðist hinn nýji Luftwaffe við bandarískar F-86 Sabre þotur, sem þá voru komnar nokkuð til ára sinna.

Á þessari mynd sést flugsveit JG 71 Richthofen, nefnd eftir hinum fræga Rauða baróni, sem átti metið í loftsigrum í Fyrri heimsstyrjöld. Merkilegt er að þarna er JG 71 stýrt af methafanum úr Seinni heimsstyrjöld, Erich Hartmann!

Myndin er máluð af Heinz Krebs, og meira eftir hann má finna á http://www.brooksart.com/

Líkur sækir líkan heim (12 álit)

Líkur sækir líkan heim Þessi hlunkur hlaut mikla frægð í þýskri sögu, ekki síst flugsögu. Hann var eldfljótur að skjótast uppí hæstu hæðir, þar sem hann felldi margan andstæðinginn með skothörku sinni. En fljótlega var þó úr honum allur vindur og leiðin lá hratt niður á við.

Flugvélin sem hann er hér að skoða árið 1944 er Messerschmitt 163 Komet, sem knúin var skammlífum eldflaugamótor. Meira um hana hér: http://en.wikipedia.org/wiki/Me_163

Hvaða krakki er þetta? (38 álit)

Hvaða krakki er þetta? Þetta er enginn annar en Adolf Hitler sem ungabarn.
Þarna var hann ennþá bara saklaust lítið barn :/

Hver er maðurinn ??? (14 álit)

Hver er maðurinn ??? Manni langar alveg ótrúlega að vera með í leiknum og svo spyr maður, hver er maðurinn ???


Vísbending: Á myndinni sem er tekinn 1912 er hann miðskipsmaður á þýsku skipi.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok