Gleymt lykilorð
Nýskráning
Sagnfræði

Sagnfræði

4.208 eru með Sagnfræði sem áhugamál
17.290 stig
708 greinar
845 þræðir
44 tilkynningar
3 pistlar
890 myndir
388 kannanir
27.169 álit
Meira

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.156 stig
STAVKA STAVKA 1.090 stig
ritter ritter 576 stig
br75 br75 266 stig
Rembrandt Rembrandt 206 stig
ornbj ornbj 192 stig
MooMoo MooMoo 162 stig

Stjórnendur

Amerískur rasismi í WWII (28 álit)

Amerískur rasismi í WWII Í Seinni heimsstyrjöld börðust Bandaríkjamenn (eins og alltaf) fyrir lýðræðinu og frelsinu. Fáir efuðust um einlægnina í þeim markmiðum, en þeir sem það gerðu bentu t.d. á að Bandaríkin studdu með ráðum og dáð einhverja hrottalegustu harðstjórn mannkynnsögunnar, Sovétríki Jósefs Stalíns. En slíkir nöldurseggir voru hreint ekki vinsælir meðan Kremlarbóndinn var kallaður “Uncle Joe” í Bandarískum fjölmiðlum, skrifað lofsamlega um hann í fjölmiðlum, og jafnvel gerðar um hann Hollywood myndir eins og “Mission to Moscow”.

Annað sem heldur var ekki mjög vinsælt að minnast á, var að á meðan Bandaríkjamenn þóttust vera að berjast gegn rasisma (í það minnsta fyrir jafnrétti allra manna), var bandarískt þjóðfélag eitt af þeim rasískustu í heimi. Minnihlutahópar sem börðust í bandaríska hernum, t.d. spænskumælandi Texasbúar og Indíánar máttu sæta mismunun og óvirðingu. Og fræg er meðferðin á hinum fjölmörgu svörtu hermönnum. Þeir fengu ekkert nema ómerkilegustu störfin, var gróflega mismunað á allan hátt, og fræg eru dæmi um að þýskir stríðsfangar fengju betra fæði og aðbúnað en þeir.

Ferlegastur var þó rasisminn gegn japansk-ættuðum Bandaríkjamönnum. Var þeim án þess að hafa neitt til þess unnið, smalað í ömurlegar fangabúðir þar sem þeir máttu dúsa öll stríðsárin. Á Japana sjálfa var litið sem ómennsk kvikyndi sem bæri að útrýma eins og rottum eða kakkalökkum. Þó að vísu megi segja að þeir hafi að nokkru leyti unnið til þess með ótrúlegri grimmd sinni við stríðsfanga og annað varnarlaust fólk, var útmálunin á Japönum í bandarískum áróðri alveg hreint ótrúleg. Í þessu tilfelli sýndu Bandaríkin, lýðræðisríki, af sér engu betri rasisma en hinir þýsku nazistar sem þeir börðust gegn af svo heilagri vandlætingu.

Þessi “fræðslubæklingur” fyrir bandaríska hermenn segir allt sem segja þarf. Skoðið bæklinginn frá upphafi á http://www.ep.tc/howtospotajap/

(Hvet áhugasama einnig til að skoða annað efni sem vísað er þarna á forsíðunni, það er líka bæði fróðlegt og fyndið)

Liberators (11 álit)

Liberators Þessa áróðursmynd birti hollenska deild SS þegar síga fór á innrás Bandaríkjamanna í landið árið 1944.
Þeir sýna menningarlegan mismun þeirra og Evrópu og á textanum fyrir neðan stendur eitthvað um að eyðileggja Evrópska menningu. Sem vissulega er sitthvað til í.

Golda Meir (10 álit)

Golda Meir Hvað svo sem mönnum finnst um Zíonisma og/eða Ísraelsríki, er ekki hægt að neita því að hér var hörkukelling á ferð. Golda var Zíonisti (og jafnframt Sósíalisti) allt frá barnæsku. Í útliti, talsmáta og háttum erkitýpískur Austur-Evrópu Gyðingur – og stolt af því.

Eins og margir af hennar þjóðflokki, fluttist hún barnung með fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna, og síðan til Palestínu árið 1921. Þar var hún alla tíð mjög virk í hinum harkalegu stjórmálum, og árið 1969 varð hún forsætisráðherra Ísraels. Ríkisstjórn hennar varð fyrir mjög harðri gagnrýni í kjölfar ófaranna í Yom Kippur stríðinu 1973 og varð í kjölfarið að segja af sér.

Golda hafði þó löngu áunnið sér sess sem einn helsti “kvenskörungur” sögunnar, dáð eða hötuð – en ávallt virt - jafnt og Indira Gandhi eða Margaret Thatcher.

http://en.wikipedia.org/wiki/Golda_Meir

Í dag er síðan sagt að breyttir tímar hafi runnið upp í þessum efnum. En t.d. Frakkland og auðvitað Bandaríkin eiga þó enn eftir að fá raunverulegan kven-þjóðhöfðingja. Það skyldi þó ekki standa til bóta á næstunni? ;)

Hver er maðurinn ? (38 álit)

Hver er maðurinn ? Jæja, hver er þessi kauði sem þið sjáið hérna fyrir ofan ?

Held ég láti þetta hérna fylgja með til að auðvelda þetta, http://www.ronaldbrucemeyer.com/suicide.mp3

Hver er þetta? (8 álit)

Hver er þetta? Fyrst að allir eru byrjaðir að senda inn hver er myndir ákvað ég að senda eina líka, en mín er special - mín er ekki úr hinum vestræna heimi.
Eina hintið sem þið fáið.

Sir Douglas Haig (3 álit)

Sir Douglas Haig Sir Douglas Haig,(1861-1928), var yfirmaður Bresku herdeildana á vestur vígstöðvunum 1915-1918, og einn umdeildasti hershöfðingi fyrri heimstyrjaldarinnar.
Hann var þekktur fyrir að senda hermenn sína í ómögulegar árásir þar sem upp í 90% mannaflans lést, og undir hanns stjórn léstust 300.000 breskir hermenn án neins sínilegs ávinnings.

Leonardo frá Vinci (8 álit)

Leonardo frá Vinci þetta er ómerkt mynd eftir Leonardó sjálfan og vilja flestir meina að þetta sé sjálfsmynd af honum.

Der Giftpilz (16 álit)

Der Giftpilz Þetta er mynd úr einni af Der Giftpilz barnabókunum, nasistaáróður gefinn út af Julius Streicher fyrir og um seinni heimsstyrjöldina.

Þarna er verið að útskýra fyrir börnunum hvernig hægt er að þekkja gyðing - eða skemmdan svepp samfélagsins samkvæmt bókinni - frá öðru fólki.

Þar segir að nef gyðingsins sé bogið, það líti út eins og talan 6.

Trivia (22 álit)

Trivia Svoldið auðveld en hvað eiga þessir tveir yndælu menn sameiginlegt. (Fyrir utan að þeir eru báðir menn)

Júlíus Sesar veginn (7 álit)

Júlíus Sesar veginn Svona í tilefni dagsins ;) Málverk eftir Vincenzo Camuccini af morðinu á Júlíusi Sesar þann 15. mars árið 44 f.kr.

http://en.wikipedia.org/wiki/Ides_of_March
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok