Þetta er svooo mikil snilld þessi græa..en vá hvað hun er dýr. Þú hefðir getað farið tvisvar til útlanda fyrir þennan pening eða eitthvað….eða fengið þér 700 ostborgaratilboð á snæland vídeó. En þetta er samt algjörlega þess virði að kaupa sér.
Já það er rétt hjá þér. En það er eitthvað við röddina hans sem ég elska. Góð dæmi um það er í laginu “Southamtpon Dock” þegar hann syngur tvær raddir þá er sú efri snilld. Og annars vegar í laginu Don´t Leave Me now…elska sönginn í því!!
Flott mynd. En í sambandi við könnunina hér um daginn þá verð ég að segja að mér finnst Roger Waters mun skemmtilegri heldur en Gilmour. Bæði röddin og lagasmíðarnar. En Gilmour er líka frábær. Og bara frábær sveit!
Heppinn!:P…var einmitt að pæla í að kaupa hana í kolaportinu um daginn á 1.500 kall en ákvað að kaupa mér frekar 3 CD. En ég hef því miður ekki heyrt alla þá plötu en hún á víst að vera sú besta í heimi að margra mati.
hehe jebb…njaa mér er eiginlega slétt sama um lúkkið…betra að hafa tvær í sitthvorum lit heldur en að hafa bara eina, þó að ein gul myndi lúkka betur, hvað þá tvær gular:P
T.Rex, The Sweet, The Who, Yes, Queen, Cat Stevens, Emerson Lake and Palmer og svo má ekki gleyma Elton John…ég gæti talið c.a 50 hljómsveitir í uppáhaldi hjá mér í viðbót..en þessar eru aðal núna.
Kúl maður..flott sett…ég á allveg eins Hi-hat og þú:)fékk hann með með trommusettinu mínu í 8 ára afmæligjöf…hann er ekkert sérstakur…en ride-inn sem er sama tegund er hins vegar frábært þrátt fyrir að vera úr einhverja byrjenda pakka dæmi. Ég vil ekkert fá mér nýjan. En finnst þér þægilegra að vera með þessa hringi á trommunum? P.s. Sabian eru bestir!
Jaaaa passar…hef litla þekkingu á Taye settum…en það sem ég hef prófað er ekkert sérstakt. Maður myndi samt kannski kaupa þetta sett af honum á smá pening ef hann er að fara að henda þessu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..