Ég get svarað því að Ian Gillan syngur á “Perfect Stranger”. Svo bara aðeins að að leiðrétta. Hann hét David Coverdale en ekki Corningdale. En allavega þá veit ég ekki hvenær tullið kemur, en ég held að það sé málið að skella sér á þá.
Ég hlusta nu mjög lítið á útvarp eftir að skonrokk hætti. Bylgjan er kúl en málið er að ef það er spilað Queen lag þá er spilað Bohemian Rhapsody,og ef Led Zeppelin er spilað þá er spilað Stairway to Heaven. Alltaf spiluð frægustu lögin með böndunum. En það er samt sjálfsagður hlutur. En það væri gaman að heyra eitthvað sem maður hefur ekki heyrt áður.
Sannkallaðir meistarat..kynntist þeim í gegnum afa minn sem er svakalegur aðdáandi. Mér finnst Romeo and Juliet besta lagið en ég þarf að kynna mér þá betur..en ég á nokkrar plötur og það er ekki eitt lélegt lag á þeim
The Fairy Fellers Master Stroke er einfaldlega besta lagið þeirra. Hvílík hljómsveit..ég á nuna öll lögin þeirra og fulltaf liveútgáfum..og hef ekki downloadað neinu af þessi..úúú..mont. Queen II finnst mér vera besta platan The Fairy Fellers Master Stroke Nevermore March of the Black Queen Þetta eru bestu lög allra tíma!
Mikill snillingur. 39' er flottasta lagið hans þar sem hann syngur einn. Mitt uppáhalds gítarsóló er í Great King Rat..kannski ekki beint eittvað eitt sóló í þessu lagi..en svakalega flottur gítar í þessu lagi.
Fleetwood Mac er rosalegt band og er Rumours án efa ein besta plata sem hefur verið gefin út. "Go Your Own Way, Don't stop, The Chain, Songbird og fleiri frábær lög.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..