Í skugganum finn ég mynd mína og sitjum, hlið við hlið. Heimsmálin, pólitíkin ræðum hátt og lágt, á meðan hlutverk okkar dofna smátt og smátt. Sammála um framvindu mála, staðnaða þróun og sofandi fólkið… við grátum tárum, hráum. Það gerist ekki neitt, því, leikurinn hefur breyst. Svo hér við sitjum hlið við hlið og reykjum Camel við og við.