Myndi fara varlega hvað sem þú gerir. Það er einmitt við að þjösnast á svona dóti sem svona krónísk leiðinda meiðsli þróast. Þú veist hvernig gamlir gaurar eru, með lélegt hné, slæman olnboga, viðkvæmt bak. Gefðu þessu tíma, ekki fara að teygja þetta, haltu hita á þessu ef þú ert EKKI bólginn, annars er málið að reyna að losa bólguna úr þessu. Svo geturðu líka látið lækni kíkja á þetta ef þetta ætlar ekki að fara. Bara ekki flýta þér allt of mikið.