Tjah, ég get nú ekki gert mér alveg grein fyrir honum þar sem ég hef aldrei litið neitt á tælensku. Kannski er hún ekki svo ólík íslensku, ég myndi ekki vita það. ;P
Samkvæmt þessu sem einhver sagði þarftu að borga 6% í skatt af öllum þeim launum þínum á árinu sem fara yfir 98 þúsunda upphæðina þarna. Semsagt, ef þú færð bara 80 þúsund í laun á árinu þarftu ekki að borga neitt. Þú færð þetta örugglega endurgreitt í ágúst eða september.
En krakkar sem eru fæddir 1991 eru 15 ára á árinu. Þetta er eitthvað gruggugt. Ég byrjaði ekki að borga skatta fyrr en í janúar árið sem ég varð 16 og þannig held ég að það eigi að vera.
Já. Gunnar kom einu sinni í MH á lagningadögum og ég fór að hlusta á hann. Þetta fór út í algjört rugl. Annars, endar greinin ekki alveg örugglega þar sem er byrjað að tala um Gunnar á neikvæðan hátt?
Hann má þetta víst. Það er í reglum vinnuskólans eða eitthvað svoleiðis að krakkarnir eigi að koma með nesti að heiman eða kaupa það áður en þeir mæta í vinnuna. Svo má ekki reykja á leiðinni í eða úr vinnu, né í pásunum.
Nei, það er búið að takmarka hámarkshraðan á flestum hraðbrautum í þýskalandi og er hann 120 km/klst., allaveganna í suðurhlutanum, alveg eins og í Sviss.
Hámarkshraðinn í Þýskalandi er nú bara 120 km/klst. á flestum hraðbrautum. Þeir eru búnir að takmarka hann, veit að það var enginn hámarkshraði fyrir nokkrum árum.
Hann er nú ábyrgur fyrir sjálfum sér. Ef hann hefði dáið hefði það bara verið honum að kenna. Það hjálpar honum ekki mikið af taka aleiguna af honum, efast um að hann eigi eitthvað eftir að keyra hægar þá.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..