Í dag er mánudagurinn 4. desember, 338. dagur ársins, 27 dagar eftir. Í dag náði ég skriflega bílprófinu með eina villu. Og villan var ekki vegna þess að ég vissi ekki allt um efnið sem spurt var um, heldur af því að ég misskildi snúið orðalag spurningarinnar. En mér er alveg sama, ég náði. Í dag ætla ég að segja ykkur sanna sögu, og hún er ekki uppspuni eins og í gær. En ekki búast við því að hún verði jafn spennandi og í gær af því að þetta gerðist í alvöru, og eins og við vitum öll,...