Þetta blackmetal er blásaklaust - meiðir eyrun smá, en það er bara út af voljúminu. Hljómfræðin er sáraeinföld, yfirleitt eintómir mollar, svo ég skil ekki hvað fólk ætti að vera hrætt við. Mér finnst líka bjánalegt að vera að bendla trú við tónlist, það er ekkert nema snobb og afsökun fyrir lélegri músík. En það er því miður ekki hægt að bæta fyrir lélega músík með svörtu glingri og svörtu leðri, hvað þá einhverjum djöfladýrkendaklisjum, svo, sorrí, dökkt málmblendi er ekki mitt kaffi. En...