Til hamingju! Ég var einmitt að eignast systurson fyrir nokkrum dögum, pinkulítið kríli, 8 merkur og 45 cm! Og ég er smá montin… En allavega, ég myndi bara kaupa einhver lítil sæt föt…eða kannski einhvern flottan myndaramma.
Ég er löngu hætt að fá sumargjafir. Reyndar gaf pabbi mér 5000 kr í gær fyrir að vera dugleg að hjálpa honum í húsverkum og líka fyrir að vera til =) Kannski myndi ég telja það sem sumargjöf…
Sammála. Fyrir nokkrum misserum þegar krónan var í ágætu standi þá var verðlag alveg eins hátt og það er núna þegar mikil verðbólga er í landinu! Eða allavega svipað. Ég er orðin svo þreytt á háu verðlagi á þessu landi. Að maður skuli láta bjóða sér upp á þetta! En maður hefur víst engra kosta völ…
Tala við hann/hana augliti til auglitis og vera hreinskilinn. Ekki segja eitthvað til að sykurhúða þetta… eins og að þú viljir ekki missa hann/hana og þið munið áfram hittast, þegar þú veist að það er ekki þannig. En samt, be nice :P
Skrifa honum bréf? Samkvæmt minni reynslu þá virkar það. Þá geturðu sagt það sem þér liggur á hjarta án þess að eiga á hættu á að það verði gripið fram í fyrir þér eða þetta endi í rifrildi. Gangi þér vel :)
Já, kannski ég kíki í Oasis… Er samt frekar að spá í kjól og það eru nú alltaf sætir kjólar þar :) Jæja það mátti reyna (þetta með hvítu jakkafötin) ;)
Ég vildi það en málið er að ef ég myndi tala við hana þá myndi hún bregðast illa við sem myndi leiða til þess að við færum að rífast og þá myndi hún ekki tala við mig í guð veit hve langan tíma. Það er ekkert grín að lenda á móti henni…:S
Ég vil bara taka það fram að ég minntist hvergi á ást í greininni, enda hef ég aldrei verið ástfangin í raun og veru. Þó ég hafi verið mjög hrifin af mínum fyrrverandi var ég ekki ástfangin af honum… Við vorum ekki svo lengi saman. En annars er (eins og ávallt) mikið til í þessu hjá þér og ég skal reyna að fara eftir þessu sem þú sagðir. Takk fyrir góð ráð :)
Bara svona hæfilega…Ekki of mikið en samt ekki of hversdagslegt. Reyna að fara hinn gullna meðalveg…:) Mér finnst svo flott þegar strákar eru í hvítum jakkafötum…bara smá ábending til þín :D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..