Frábært ljóð eftir Jónas Hallgrímsson. Eilífur snjór í augu mín út og suður og vestur skín, samur og samur inn og austur, einstaklingur! vertu nú hraustur. Dauðinn er hreinn og hvítur er snjór, hjartavörðurinn gengur rór og stendur sig á blæju breiðri, býr þar nú undir jörð í heiðri. Víst er þér, móðir! annt um oss; aumingja jörð með þungan kross ber sig það allt í ljósi lita, lífið og dauðann, kulda’ og hita.