Austurstræti Nú verður aftur hlýtt og bjart um bæinn. Af bernskuglöðum hlátri strætið ómar, því vorið kemur sunnan yfir sæinn. Sjá, sólskinið á gangstéttunum ljómar. Og daprar sálir söngvar vorsins yngja. Og svo er mikill ljóssins undrakraftur, að jafnvel gamlir símastaurar syngja í sólskininu og verða grænir aftur. Og þúsund hjörtu grípur gömul kæti. Og gömul hjörtu þrá á ný og sakna. Ó, bernsku vorrar athvarf, Austurstræti, hve endurminningarnar hjá þér vakna. II Hér lærðist oss að skrópa...