Hin klassíska barátta milli Mr. Nice Guy og Mr. Jerk. Ég veit að á yfirborðinu þá lítur það út eins og flestar stelpur vilji Mr. Jerk og ég hélt það lengi vel líka. En prófum að skoða þetta aðeins betur. Flestar stelpur segjast vilja nice stráka sem að komi vel fram við þær, sýni þeim virðingu, sé skilningsríkur, rómantískur, kunni að hlusta, sé þolinmóður og ekki skemmir fyrir ef að hann er myndarlegur og kannski örlítið listrænn í sér. Þetta er allt góðir og gildir eiginleikar og fullt af...