Sammála því. Fólk er í stríði við ráðamenn þessa lands, ekki lögregluna. Þeir eru bara að vinna sína vinnu og verða að gera það sem starfsreglur þeirra segja til um, sama hvort þeim líka betur eða verr.
Nenni eiginlega ekki að lesa yfir svörin sem þú ert búin að fá þannig það getur vel verið að það sé einhver búinn að segja það sem ég hef að segja. Þú þarft að læra að skipuleggja tímann þinn með félögunum. Þá ertu engan að svíkja og hefur tíma fyrir alla. Enginn verður móðgaður og þú sleppur við allt það bull. Auðvitað er eðlilegt að maður fjarlægist vinina aðeins þegar maður er að byrja í sambandi en það er mikil hætta á að þú hættir bara alveg að tala við þá fyrst þið eruð ekki vanir að...
Já - hún er akkúrat líka minn veiki hlekkur :/ Þessvegna er sérstaklega fínt að æfa sig aðeins á þessari tölfræði í framhaldsskólanum áður en þú þarft að taka hana af fullri alvöru ;)
Sæl. Ég get alveg sagt þér það að skólinn sjálfur skiptir kannski ekki svo miklu máli heldur hvaða fög þú velur. Ég er til dæmis stúdent af félagsfræðibraut frá Flensborg í Hafnarfirði (en tók líka eitthvað í FG) og er núna á öðru ári í sálfræði í HÍ. Það sem ég mæli með fyrir þig ef þú stefnir á félagsfræðibraut að taka meira af líffræði heldur en þarf. Margir gera sér ekki grein fyrir því hversu mikil líffræði er í sálfræðinámi og það er rosalega gott að vera vel undirbúin. Einnig mæli ég...
Ég fékk *peysu og málverk frá kærastanum (sem hann málaði sjálfur) *bók og pening frá mömmu *bol, skálar og inneign í Kringlunni frá pabba *Emami kjól frá konunni hans pabba *töfrasprota frá mági mínum *náttbuxur frá mágkonu minni *ilmvatn frá systur minni *pottsett frá tengdaforeldrum *bók og pening frá afa *handklæði frá tengda-ömmu *pönnukökupönnu og spaða frá hinni ömmu og afa *heimatilbúna kertastjaka frá vinkonu minni Var ekkert smá sátt með þetta allt saman :)
Gæti líka verið að þú sért ekki að greiða honum nógu langt ofaní feldinn? Ef hann er mjög loðinn er ekki nóg að greiða bara efstu hárin, heldur verður maður að ná í þessi fyrir innan líka. Spurning hvort það sé bara vandamálið? Og nú er ég hætt að hugsa um þetta;)
Ef ég væri þú myndi ég nú ekki hlusta mikið á ráðið hérna fyrir ofan. Ef hann er í hnútum er það vegna þess að þú greiðir honum of lítið. Það sem þú getur gert núna er að klippa hnútana úr of vera svo enn duglegri við að greiða. Einnig hjálpar mikið til að halda feldinum góðum að setja hann reglulega í bað og þvo honum vel - með sjampói og hárnæringu. Gangi þér vel :)
Ég myndi segja að það væri nokkuð ljóst að þessi drengur er að gera eitthvað sem hann á ekki að vera að gera. Ráðlegg þér að láta ekki fara illa með þig og láta hann þar af leiðandi vera.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..