Númer 1, 2 og 10 - Vertu duglegur að vinna í sjálfum þér! Þarft nú örugglega ekki að stressa þig mikið yfir þessu sms-i, því þú varst að segja að þú hefðir ekki áhuga á hinni stelpunni. Ég dreg það ekki í efa að hún sakni þín en hafðu hins vegar í huga að hún er úti í útlöndum að djamma og skemmta sér og hefur kannski ekki mikinn tíma til að hugsa um sambandsslitin, eins og þú hefur. Nú veit ég ekki um hvað rifrildi ykkar hafa snúist, en ef það hefur eitthvað tengst því sem þú ert að leita...