Ég mæli með því að þú fylgist vel með henni, bæði þegar hún er að eiga og fyrstu dagana á eftir. Ef til vill gengur fæðinginn illa og þú gætir þurft að hjálpa henni eða jafnvel kalla dýralækni til. Eru þetta fyrstu kettlingarnir hennar? Það eru alls ekki allar læður sem eru tilbúnar í móðurhlutverkið strax og sumar hugsa ekki nógu vel um kettlingana fyrst. Gangi þér vel :)