Þetta gæti verið slæmt flopp en samt verður gaman að sjá suma karakterana og Nadia er nú eitthvað fyrir augað. Hlakkar samt einna mest til að sjá Alyson Hannigan fara með flautusögur aftur…
Það er rétt að ef maður lendir í aðstæðum sem þessari sem þú lýsir myndi maður beita skotvopnum ef allt annað þrýtur. Mér finnst hinsvegar mjög vafasamt að lögreglan beiti skotvopnum á mótmælendur. Það er betra að hafa stjórn á svona með þrýstivatni og táragasi o.fl. aðferðum. Þ.e. ef ofbeldi brýst út.
Sameining Radio og X var disaster. Þreyttasti þáttur landsins hlýtur að vera Tvíhöfði og hálfvitapar landsins Ding Dong. Þetta á að heita tónlistarstöð og þá eiga þessir þættir ekki heima þarna. Tveir menn halda að mínu mati upp virku dögunum á Radíó-X og það eru Þossi (frábær útvarpsmaður) og Frosti sem kemur manni nú öðru hverju á óvart og laumar þess á milli inn betri slögurum. Mér fannst líka eins og að Radíó hafi copy/paste-eð playlistum X-ins að miklu leiti þegar sú stöð byrjaði. X-ið...
Algerlega sammála vali plodroid á plötum #2-3 en hef bara ekki heyrt í nýju Muse plötunni. Ef þeir eru að gera efni líkt því sem þeir gerðu vinsælt af þeirri fyrri er þetta vafalaust prýðisgripur. Ég á samt erfitt með að sjá Muse toppa hinar tvær plöturnar. Veit ekki hvort að High Visibility með The Hellacopters eigi heima á svona topp lista en hún er sannarlega með þeim áhugaverðari.
You miss my point. Ef að það þarf að takmarka teningaköst með þeim hætti sem ég var að tala um er verið að leggja of mikið upp úr þeim. Ég held að maður með lockpick skill og lockpicks myndi að gefnum nægum tíma alltaf getað á endanum opnað venjulegan lás. Enda myndi maður ekki rúlla við þannig aðstæður nema til að athuga hvort hann brýtur græjurna.
Ég hef bent á hluti sem mér finnst athugaverðir við kerfi. Ok, ég set út á kerfi, en ég er ekkert að eltast við að sverta kerfi. Spilið, stjórnandinn og grúppan er númer eitt. Kerfið er “distant second”.
Það er gaman af skotvopnum. Þetta er bara enn ein tækjadellan, rétt eins og t.d. bíladella. Það er gaman að taka í gikkinn á skammbyssu og finna bakslagið og púðurlyktina og sjá gatið birtast á spjaldinu. Flestir sem hafa prófað svona hafa mjög gaman af þessu. Meira að segja mamma hafði gaman af þessu, a.m.k. meðan að riffillinn sló ekki mikið og var ekki mjög hávær. Það eru einhver skotsvæði á Íslandi. Ég hef bara verið útúr þessu nokkuð lengi. Ástæðan er sú að ég hef áhuga á skammbyssum en...
Það sem skiptir máli er það að það er ekki fylgni innan BNA á milli takmarkana á byssueign og notkun þeirra í glæpum. Í Washington D.C. eru skammbyssur bannaðar en þó er borgin kölluð “The Murder Capital of USA” enda var allaveganna á síðasta áratug mest af morðum m.v. íbúafjölda. Í Detroit sem er ein mesta glæpaborg BNA voru óvenjulega strangar reglur um skotvopn. Í New Hampshire minnir mig færðu réttinn til að ganga með skammbyssu innanklæða þegar þú skráir þig á kjörskrá. Heyrum við mikið...
Ég nefndi einn stakan hluta laga sem ég væri sammála. Og þótt ég ætlaði að þverbrjóta þann hluta þyrfti ég ekki radarvara því þeim virðist aldrei vera framfylgt. Ég ætla hinsvegar að halda áfram því sem ég geri að miða hraða minn við aðstæður hverju sinni og treysta á dómgreind mína en ekki skilti meðfram veginum. Ég þekki þessi lög ágætlega sem þú nefnir enda er ég með byssuleyfi og á skotvopn. Þetta var ekki erfitt námskeið sem ég tók heldur var ferlið allt bara pirrandi. Ég er hlyntur...
Að mínu mati hlýturðu að geta gert þetta aftur og aftur ef þú ert í næði. Ef lásinn er ekki sérstaklega erfiður tekst þetta á endanum. Ef lásinn er mjög erfiður aukast líkur á slæmu klúðri, brýtur lockpicks eða þvíumlíkt. Það er nú ekki mikil gæsla á einhverjum fjársjóð hafa bara lás á honum eða hvað…?
Hei, ég varaði við að fólki gæti þótt greinin leiðinleg! Eins og ég sagði finnst mér kerfið hafa óorð á sér hjá mörgum sem mér finnst það ekki eiga skilið. Kannski eru það einhverjir reglupúka GMs sem sækjast í kerfið eða í þá áttina. Veit ekki.
Er ég í mótsögn við sjálfan mig? Nei, ég er að benda á það að ég telji að reglur um hámarkshraða séu misviturlegar og nefni þarna dæmi um þar sem ég tel reglurnar góðar en skýrlega mjög sjaldan framfylgt. Ég segi bara að tíminn mun leiða í ljós hvort meðalhraði mun lækka. Ég mun eins og margir athuga að fjárfesta í verulega vönduðum radarvara enda hefur þannig græja bjargað mér a.m.k. einu sinni frá mögulegu sektaratviki. Ef þú heldur að eina lausnin fyrir ökumenn, hvort sem þetta er góð...
Gott hjá þér Rooster. Ég hef sjálfur kvartað yfir hegðun spilara á korki og að mig minnir fengið góðar undirtektir. Samt var þráðinum mínum eytt. Tek fram að þarna var ekki um neitt skítkast að ræða enda ekki vanur að stunda þannig.
Sem stjórnandi á öðru áhugamáli get ég sagt að bjartsýni fólks við greina innsendingu er ótrúleg. Fólk heldur að auglýsing um að bíllinn þeirra sé til sölu sé grein. Ég man því miður ekki url-ið en það eru leiðbeningar frá Hugi.is til umsjónarmanna. Ég fer eftir þeim. Þegar maður fær eithvað sem maður telur ekki vera grein hefur maður tvo möguleika, Eyða henni eða senda hana á kork. Ég hef ekki eytt greinum oft en líklegast þriðjungur eða helmingur innsenndra “greina” fer á kork.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..