Það er samt bara lágmarkskrafa, að mínu mati, að skattpeningur minn nýtist mér, ekki beint nauðsynlega, en óbeint a.m.k. Ég verð þó að segja það að ef við viljum að ríkið styrki félagsstarfsemi, þá er fótboltavöllur ekki vitlausari en hvað annað. Ég held samt að það sé staðreynd að það er ansi margt sem vantar fé í hér heima, en það er kannski ekki það sem verið er að tala um hér. Nú er spurning, er rétt að taka fé af skattgreiðendum til aðstoðar við erlend ríki, fram yfir það sem fólk...