Svo ég vitni í einn af síðustu rakarameisturum á Íslandi, sem settist í helgan stein stuttu fyrir jól: “Svona 95% af karlmönnum á Íslandi kunna ekki að raka sig. Þeir skella bara froðunni framan í sig á 10 sek og rífa svo skeggið af sér með blaðinu. Til að fá góðan rakstur þarf að nudda raksápunni vel inn, í að minnsta kosti mínútu, áður en byrjað er að raka”