Vandi er um slíkt að spá…. Til að byrja með, ekki líta á “sólópróf” sem einhvern áfanga. Það skiptir ekki nokkru einasta máli, og þessi auglýsing frá FÍ “sólópróf á 99.900” er náttúrulega bara vitleysa. Sóló er bara lítið skref í átt að einkaflugmanninum. Til að byrja með mæli ég með að þú takir einkaflugmanninn hérna á Íslandi, en ekki endilega hjá Flugskóla íslands. Farðu á alla staðina (FÍ, Flugsýn, Geirfugl, jafnvel Suðurflug), skoðaðu flugvélarnar, verðskrána og umfram allt kennarana....