Nei, þetta er undarlegt sambland menningarlegs afstæðis, veðurfræði og Heisenberglögmálsins Landamæri Kína og Mongólíu eru Kínamúrinn Frá Kínverjum séð nær kína að Kínamúrnum, en frá Mongólum séð nær Mongólía að Kínamúrnum mínus sú vegalengd sem bogamennirnir drífa. Nú eru bogamenn miságætir, sérstaklega nú á dögum þar sem bogfimi er deyjandi listgrein, og þá sérstaklega í Kína þar sem Kalasnikov-riffillinn frægi nr.47 (opus 5, í fís moll) hefur latt hæfustu bogmenn til æfinga. Nú eru hins...