Og hvað svo? Ef japanir gæfust ekki upp hvað ættu þeir þá að gera? Ættu þeir þá bara að fara í fýlu og setjast útí horn? Þeir urðu að sýna að þeir hefðu þessi vopn og vilja til að beita þeim.
Gæti verið að þetta “vit” sem þú talar um stafi af ótta við að önnur kjarnorkuveldi svari fyrir sig? En sá ótti var ekki til staðar þegar Bandaríkin gerðu árásina á Japan þar sem Bandaríkin voru eina kjarnorkuveldið.
Sprengjan var ekki 21 kílótonn að þyngd því engin flugvél gæti borði 21000 tonn. 21 kílótonn segir að styrkur sprengjunnar jafngildi 21000 tonnum af tnt sprengiefninu
Það þarf náttúrulega ekkert að vera að sýna þá neitt, þá gæti fólk farið að mótmæla þessu af einhverju viti og það vill aðdáendaklúbbur Bush, Dabbi og Dóri, ekki hafa.
Það er mín skoðun að z hefði aldrei átt að vera tekin úr íslensku ritmáli. Þegar það var gert bjagaðist allt tungumálið. Orð eins og íslenska, og hunsa hafa í raun misst alla rökrétta tengingu við uppruna sinn. Ég er þessvegna hlynntur því að z verði tekin upp aftur.
Diet Coke er á mörkum þess að teljast kók. Sætuefnið er horbjóður sem skilur eftir sig ógeðslegt eftirbragð og ætti sá drykkur þessvegna ekki að bera heitið Coke.
En ef það er hægt að hafa ofan í sig og skemmta sér á sama tíma af hverju á maður ekki að gera það? Og ekki svara; “því að aumingja litlu dýrin meiða sig”, því eitt af því sem veiðimenn reyna að gera er að fella dýrin eins fljótt og hægt er til að kvelja þau minnst.
Þú ert semsagt að segja að maður eigi ekki að gera neitt sem er ekki lífsnauðsynlegt? Og í guðanna bænum hættu að nota hástafi svona mikið, það gefur bara þá mynd af þér að þú sért orðinn mjög gramur og vitir en viljir ekki viðurkenna að þú sért búinn að tapa rökræðunum(sem þú reyndar ert).
Þetta fær mann til að hugsa hvort fiskveiðar falli í sama flokk. Það er alveg hægt að borða eitthvað annað en fisk. Það er hægt að kaupa sér til dæmis kjúkling. Hættum fiskveiðum, ekki kvelja aumingja fiskana.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..