Eeeeeeee, verð hátt, óhagstætt fyrir þig að kaupa en fasteignasalinn aftur á móti á í vændum stór umboðslaun ef hann nær að plata þig til að kaupa dýra íbúð, og honum er sama hvort þú ferð á hausinn eftir það, hann fær peningana sína.
Þú ert nú ekkert mjög þroskaður sjálfur að vera að taka þetta nærri þér. Þess má til gamans geta að ég er ekki aðdáandi íþrótta. Fíla heldur ekki skák.
Hvað er fólk alltaf að væla undan herstöðinni í Keflavík? Það er ekki eins og þeir séu að stunda einhverja stríðsglæpi þarna eða að þessi stöð skipti einhverju máli fyrir einhvern, öðruvísi en með því að spara okkur íslendingum einhverja milljarða í rekstri flugvallarins okkar.
Nei, biblían hélt okkur í fortíðinni. Kirkjan bannaði vísindi og brenndi þá sem viðurkenndu ekki að allt sem stendur í biblíunni væri dagsatt. Það er ekki langt síðan að kirkjan viðurkenndi að vísindin eru eitthvað annað en guðlast og vitleysa, og það gerði hún bara til að halda í fólkið.
Sko, kaþólska kirkjan framleiddi myndina Contact til þess að fela samsærið sitt með því að gefa fólki hugmyndir um annað samsæri sem er ekki á vegum kirkjunnar. Af því að þú varst of upptekinn af þessu samsæri í myndinni þá datt þér ekki í hug að kaþólska kirkjan væri með samsæri í gangi, er það nokkuð?
Mjög góð grein. En það er sorglegt hvað hún er full af litlum stafsetningar-, málfræði-, og örlitlum, frekar kjánalegum villum eins og að Hitlersæskan hafi verið kynþáttur. Ef ekki væri fyrir það þá væri þetta án nokkurs vafa besta grein sem ég hef lesið hér á Huga. Sem stendur er smá vafi.
Ohh ég þoli ekki þegar fólk segir þetta. Ef þú værir jafn mikið í flugvél og í bíl þá væru miklu meiri líkur á að þú deyjir í flugslysi. Þetta er alveg það sama og að segja að það sé ekkert hættulegt að ganga á jafnvægisslá milli skýjakljúfa vegna þess að miklu fleira fólk deyr úr krabbameini.
Mér verður að segja að ég fannst þetta ekki fyndið. Mér hlakkar til að íslendingar læri að tala tungumálið sitt rétt þó að mér viti að það er ólíklegt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..