Þetta er rugl. Það er víst fastur tími í stundatöflum kennara. Sumir skólastjórar eru liðlegri en aðrir og leyfa kennurum stundum að fara eftir kennslu og vinna heima, en svo sannarlega eru ákveðnir fundartímar og fleira þess háttar á eftir kennslu.
Mér þætti þá gaman að sjá þig taka prófin. Ég þoli ekki þegar fólk gleymir alltaf að taka inn í myndina að margir grunnskólakennarar eru með þriggja ára háskólanám að baki í sérgrein (flestir frá HÍ) og hafa tekið kennslufræðin aukalega. Þeir eru því margir mun meira menntaðir en þetta grunnnám í KHÍ segir til um.
Það gaman að sjá nýja grein hér. Mér finnst samt að hún hefði mátt vera lengri og nákvæmari. T.d. af þátttöku persónunnar í Hringastríðinu (sem er sko heldur betur veigamikil) og um hvernig hún og Faramír kynnast og enda saman. Jómar verður konungur í Róhan, Aragorn gerir Faramír að prinsi yfir landssvæði í Gondor. Svo Jónvin stjórnar ekki Róhan. Það væri nú líka gaman að fá meira mat á persónunni :) Karat
Enn og aftur. Þetta er ekki rétt hjá þér. Ég tek hér dæmi af stundatöflu kennara sem ég hef fyrir framan mig, með viðtalstímum, fastri viðveru, fundum og foreldrasamstarfi (allt skráð á töfluna, hver dagur er frá 8-5) þá gerir þetta 45 klst. á viku. Ég viðurkenni að hér eru 8 40 mínútna kennslustundir umfram venjulegan kennslustunda fjölda. En það gerir samt sem áður yfir 40 klukkustundir á viku. Þá er sá tími sem fer í undirbúning og yfirferð verkefna ekki talinn með.
Þetta er nú ekki alveg rétt. Sumir fá minna en 126 þúsund útborgað. Og ekki gleyma leiðbeinendum. Þeir fá enn lægri laun en eru samt í Kennarasambandinu.
Fyrir helgina hefði ég fullyrt að þeir færu í verkfall. En eftir það hvernig er búið að traðka á grunnskólakennurum síðan á föstudag þá er ég ekki viss um að framhaldsskólakennarar þori í verkfall, eða nokkur önnur stétt.
T.d. hnífapör, sængurföt, bækur, einhvern lítinn skartgrip (svona armband með nafninu, kross eða trú von og kærleiks hálsmen), fínt mál til að drekka úr, teppi… Kv. Karat
Miðlunartillagan er úr sögunni núna, svo það skiptir engu máli lengur hvað stóð í henni. Hún kom betur út fyrir yngri en eldri kennara, en var samt langt frá því að geta talist góð (þetta eru flóknir samningar að útskýra þegar fólk er almennt ekki inni í þeim).
Ég er búin að lesa miðlunartillöguna og hún er rusl. Fólkið fær aldrei að vita allt. Dæmi: meðaltal launa kennara í fréttunum. Þá eru laun skólastjórnenda tekin með inn í töluna og þau hækka meðaltalið gífurlega. Skólastjórar geta verið með hálfa milljón á mánuði. Kennari sem er með laun í hærri kanntinum nær kannski upp í 200 þúsund. Þetta fær fólk aldrei að vita, það sér bara meðaltal af öllum og heldur því að hinn venjulegi kennari sé að fá meira borgað en í raun og veru.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..