Osama bin Laden, sádi-arabískur andófssinni í útlegð, varaði fyrir þremur vikum síðan að hann og hryðjuverkasamtök hans ætluðu að standa fyrir árás gegn Bandaríkjunum, árás sem ætti sér ekkert fordæmi. Árásin átti að vera gerð til að refsa Bandaríkjamönnum fyrir að styðja Ísrael gegn hagsmunum Palestínumanna. Þetta kom fram í máli blaðamannsins Abdel-Bari Atwan en hann hefur aðgang að hryðjuverkaleiðtoganum umdeilda. Þetta kemur fram á Mbl.is og ekki lítur það vel út fyrir Osama Bin Laden...