Já, ef að andrúmsloftið er sem ákjósanlegast getur það haft góð áhrif á alla nóttina, spilararnir finna sig betur sem karakterarnir, og DM´inn uppsker aukinn anda við lýsingar og stundarspuna. Það hefur reynst mér best, sem DM, að hvetja (með xp bónusa í vasanum), spilara til að tala ávallt í beinni ræðu, og um karakteranna sína í fyrstu persónu: Spilari Ileniu myndi þá segja: Ég hvessi á hann augun og segi ,,Smakkaðu á sverðinu mínu, göltur!" -en ekki: Ilenia hvessir á hann augun og hótar...