Ég bíð spenntur eftir grein um fjarkana og sexurnar. Vandamálið mitt við þessar vélar að þetta var allt fyrir minn tíma. Ég veit þó eitthvað smáræði (af óbilandi áhuga, lestri og spjalli), en meira veit ég um nýju-kynslóðarvélar okkar, þ.e. F-27Mk-50, B737 og 757. Annars minnti þessi tilvitnun þín, Liberator, í Loftleiðaauglýsinguna “We are slower, but lower” á aðra sögu. Á þessum tíma voru seinkunir reglan fremur en undantekningin og því óþarft að fara á fætur á réttum tíma í morgunflug....