Ef þú ert að bera ástand saman við nákvæmlega ekkert þá eru allir eiginleikar þess ástands mikilvægari en í neindinni. Ömurð, frábærð, litadýrð, hamingja og vesæld er öll meiri í ástandi sem hefur yfir þessum eiginleikum að búa en engu ástandi skilgreiningu samkvæmt. Ástandsleysi hefur ekki þessa eiginleika þannig að hægt sé að mæla stærðir þeirra. Það væri svolítið eins og að spyrja hve fallegur hárlitur sköllótts manns sé. Spurningin er merkingarlaus, því hún tekur til samanburðar við...