Mér finnst einhvernveginn hálf jökkí tilhugsun að ganga í notuðum bol af einhverjum öðrum en kannski er ég bara svona mikil kjelling í mér. Samt, ef einhver væri að selja notaðar nærbuxur með mynd af td Ozzy Osbourne á rassgatinu þá myndi ég alveg kaupa þær og ganga í þeim vitandi að í hvert skipti sem ég prumpaði þá væri ég að prumpa framan í Ozzy…
Vinur minn smíðar lampamagnara, ég hirti þessa lampa í vinnunni og gaf honum þá, hann hefur búið til magnara handa mér og lagað alls konar græjur fyrir mig frítt árum saman.
Óóókei.. það er semsagt hægt að selja gamla lampa.. Ég gaf vini mínum nokkur hundruð gamla lampa semsagt.. Telefunken, Philips, You name it.. Slatti af þeim var ennþá í upprunalegu kössunum og sumir voru alveg frá seinni heimsstyrjöld..
Palm muting virkar líka fínt á mannsröddina, ef maður vill ekki að heyrist eins hátt í sér en vill samt ekki hvísla þá bara leggur maður lófann yfir munninn á sér..
Það voru til nokkrir svona gítarar á íslandi á árum áður, ég man að stóri bróðir vinar míns átti tvo Framusa í kring um 1982 og ég ætlaði alltaf að eignast svona gítar þegar ég yrði stór… Það getur verið að þú finnir það sem þig vantar í þennann gítar hjá þessum gaur. http://www.subwayguitars.com/ Bætt við 26. júlí 2007 - 02:54 Úbbs! vitlaus slóð! Hér er rétta slóðin semsagt. http://www.fatdawg.com/
Ég átti einusinni Japanskann Fender, hann var alveg stórfínn, ekkert að honum bara, hef prófað ameríska fendera sem voru algjört sorp miðað við þann Japanska semsagt.
Vegna þess að ég nota hann nánast ekkert lengur, þetta er eiginlega svona rokkabillí/blús/kántrígítar en ég er að fást við raftónlist þessa dagana og þessi gítar er hreinlega með of stórt og flókið sánd til að blandast vel við syntha og slíkt, hann nýtur sín best í hefðbundnari tónlist. Þetta er æðislegur gítar en ég sé bara engann tilgang með því að eiga hljóðfæri sem stendur ónotað í tösku inní skáp.
Held að E bow virki alveg á Variax, e bowinn fær strenginn til að titra, ég held að það skipti engu máli hvort það séu eiginlegir pickuppar á gítarnum sem slíkir, E bow virkar tildæmis alveg fínt á kassagítara eða önnur strengjahljóðfæri.
Nei, eiginlega ekki, ég á amerískann Fender Stratocaster og indónesískann Tradition Telecaster sem ég var að fá úr fínstillingu og hljómar alveg sick barasta. Það er búið að bjóða mér Gibson Les Paul í skiptum fyrir hann en mér fannst sá gítar bara alls ekki nógu góður.
Ég hef prófað nokkra SG gítara og mér finnst þeir einhvernveginn allir eins þannig að ef þú ert ekki að fíla þennann notaða í Rín þá er sennilega SG ekki fyrir þig. Nýr SG kostar mjög svipað og Les Paul þannig að ef þú ert að spá í að kaupa gítar að utan þá held ég að þú ættir bara frekar að fá þér þannig, þeir eru líka örugglega auðveldari í endursölu ef þér finnst hann svo ekki vera málið.
Rafmagnsgítar á stærð við td Fender kemst í hólfið yfir sætinu í flugvél svo lengi sem hann er í poka, ekki tösku. Kassagítar kemst örugglega ekki í hólfið yfir sætinu. Kauptu þér frekar bara einhvern útilegugítar í svíþjóð fyrir klink.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..