Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

DutyCalls
DutyCalls Notandi síðan fyrir 19 árum, 7 mánuðum 52 ára karlmaður
1.644 stig
_______________________

Re: Ju 488 long rang bomber

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Nokkurnveginn rétt, en þó er FW 200 Condor undantekning á þessu. Þegar hún kom fyrst fram sem farþegavél fyrir stríð, þótti hún ein allra fullkomnasta langflugs-vél heims. Hún hentaði alls ekki sem sprengjuflugvél í stríðinu en kom að góðum notum sem langdræg könnunarvél. Komst t.d. hingað til lands og tilbaka frá Noregi án þess að tæma tankana. Það getur því varla verið mikill vafi á að Þjóðverjum hefði tekist að hanna mjög góðar langdrægar sprengjuvélar hefðu þeir reynt í einhverri alvöru.

Re: Dani bað að heilsa Rudolf Hess!

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Skemmtilegur “moli” þarna, og akkúrat gott dæmi um þessa “hrekkja-andspyrnu” Dana fyrsta árið, sem ég talaði einmitt um í grein minni í haust um þetta hernám. En ég er sammála einhverjum fyrri ræðumönnum um að einn svona “moli” getur vart talist grein. Væri ekki sniðugra að safna nokkrum saman í hverja grein? Þú gætir valið þá mola sem hafa mest sameiginlegt saman í greinar, og kannski haft nokkur orð inná milli til að tengja þá.

Re: Let it be

í Gullöldin fyrir 19 árum
Ég held að ég fari með rétt mál þegar ég segi að allar “live” upptökurnar á plötunni eru teknar á sömu tónleikum, þessum frægu á þakinu á Abbey Road stúdíóinu. Ringo sagði í einhverju viðtali að þeir hefðu vonast til þess að löggan myndi handtaka þá með látum, en urðu fyrir vonbrigðum. London-löggan var bara með sín frægu “what's all this then?” rólegheit, en leyfði þeim að spila.

Re: Óuppgötvað Ísland, innflytjendasprenging á döfinni?

í Deiglan fyrir 19 árum
Þekki ég nokkra breta sem hefðu sennilega áhuga á því að selja allt sitt í bretlandi og flytja hingað, kaupa sér MJÖG ÓDÝRT húsnæði á landsbyggðinni, og fá sér einhverja einfalda en góða vinnu. Æ æ æ… ástæðan fyrir því að húsnæði er MJÖG ÓDÝRT á landsbyggðinni er sú að þar er afskaplega lítið um vinnu, jafnvel “einfalda en góða”. Sú er nú aðal-ástæðan fyrir því að þúsundir Íslendinga sem áður bjuggu þar, hafa flutt til Reykjavíkur.

Re: hvað ?

í Flug fyrir 19 árum
Hehe, sama hér… hélt að þetta væri kannski eitthvert “flugmanna-jargon” ;)

Re: ofsatrúafólk á móti SW

í Sci-Fi fyrir 19 árum
Hehe, já alltaf frábær og klassísk skemmtun að lesa skrif þessa fólks um tónlist.

Re: ofsatrúafólk á móti SW

í Sci-Fi fyrir 19 árum
Það má vel vera, en það hlýtur þá líka að vera partur af gríninu. Ég á afskaplega bágt með að trúa að fólk sem í fullri alvöru hefði þessar skoðanir, myndi setja þær fram á svona ótrúlega hallærislegan og drepfyndinn hátt.

Re: ofsatrúafólk á móti SW

í Sci-Fi fyrir 19 árum
Þetta er augljóslega grín, verið að hæðast að trúaröfgamönnum. Og nokkuð vel heppnað, þetta er reyndar alveg drepfyndið :)

Re: Könnunin: Stríðsskaðabætur Þjóðverja...?

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Þarna finnst mér þú vera að teygja sök Frakka ansi langt. Jú, þeir komu illa fram við Þjóðverja, og Verslalasamningarnir voru svívirða. En árið 1939 voru Þjóðverjar (án mikilla mótmæla frá Bretum og Frökkum) búnir að rétta hlut sinn fullkomlega og rúmlega það. Algerlega ástæðulaust var fyrir þá að leggja útí aðra styrjöld. Og þeir vissu vel að innrás þeirra í Pólland myndi leiða til styrjaldar við Vesturveldin.

Re: DV mótmæling?

í Tilveran fyrir 19 árum
Já sammála, ég bý í 101 og myndi aldrei nenna að ganga uppí Skaftahlíð, sérstaklega ekki með eitthvert mótmælaspjald á öxlinni ;)

Re: Þjóðálitsleg ágreiningarmál

í Deiglan fyrir 19 árum
Skemmtilegur pistill, tounge firmly in cheek, eins og sagt er. Skrýtið hvað það er annars vandlifað í þessum heimi: Ef komið væri að tveimur mönnum inná klósetti á skemmtistað með sígarettu í munnvikinu, og brækurnar niður um sig - annarsvegar árið 1977 og hinsvegar árið 2007, yrði þeim á báðum tímum hent út, en fyrir ólíkar sakir.

Re: Kona ársins, DV og Hræsni Íslendinga

í Deiglan fyrir 19 árum
Hér á landi virðast menn mjög oft misskilja hugtakið. Það er “Saklaus uns sekt sannast” ekki “Saklaus uns sekt er dæmd í Hæstarétti”.

Re: Væri til í að hætta sem stjórnandi, óska eftir eftirmanni

í Vísindi fyrir 19 árum
Hmmm… hvað er Sigurður H. Richter að sýsla þessa dagana? :D

Re: Krak des Chevaliers

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Glæsilegt mannvirki. Og næstum 1000 ára gamalt, það er ótrúlegt að spá í því.

Re: Eru stríð allt?

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Stærðfræði var nú aldrei mitt sterkasta fag, en maður verður víst að reyna einhverjar reikningskúnstir… Ef ég man rómversku tölurnar rétt, er XVII sautján. Þú keyptir semsagt 17. árganginn af Lesbók Moggans. Og ef ég man rétt fór Lesbókin að fylgja Mogganum einhverntíman um 1920. 17. árgangur er nítjánhundruð-þrjátíu og eitthvað, rétt fyrir stríð. Ég efast ekkert um að þetta sé stútfullt af athyglisverðu lesefni. Man að á mínum æskuárum fyrir 20-15 árum síðan, fletti ég alltaf Lesbókinni, og...

Re: Eru stríð allt?

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Jújú, en það er þó alls ekki algilt. Sum tímabil sögunnar eru svo sveipuð í nostalgíu að nútímafólk heldur að þau hafi verið einhverjar “gullaldir” náungakærleika, “einfaldari” eða “saklausari” tímar, þegar þau voru það í raun alls ekki. Fólk kýs að gleyma öllu því slæma sem gekk á, og eftir stendur óraunveruleg glansmynd. Besta dæmið er líklega sjötti áratugur 20. aldar (1950's).

Re: Eru stríð allt?

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Má ekki kannski líkja þessu við veðurfræði: Fellibyljir og þrumuveður eru óneitanlega áhugaverðari fyrirbrigði en blessuð blíðan.

Re: Tarantino talar um íslenska "menningu"

í Lífsstíll (gamli) fyrir 19 árum
Alveg er ég ferlega sammála öllu sem þú segir þarna, engu við það að bæta. …jú, reyndar er þó nokkru við að bæta, en það myndi kalla á langan reiðilestur um þetta ömurlega ástand áfengismála hér á landi. Og það er eitthvað sem maður nennir ekki að æsa sig við að skrifa svona rétt fyrir svefninn ;)

Re: Fáranleg uppsögn

í Deiglan fyrir 19 árum
Algerlega sammála síðasta ræðumanni. Farðu beint í félagið. Ef allir þínir pappírar eru í lagi, ber fyrirtækinu að greiða þér laun næstu 3 mánuði.

Re: Homer

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Það segir sitt um ástand vestrænnar menningar í dag, að nafni hans Simpson er mun frægari! :D

Re: Tarantino talar um íslenska "menningu"

í Lífsstíll (gamli) fyrir 19 árum
Fínn pistill, orð í tíma töluð! Skiljanlega hafa útlendingar gaman af þessari villimanna-skemmtanamenningu okkur, en ólíkt þeim þurfum við að búa við hana, og til lengdar verður hún hryllilega þreytandi. Það er afskaplega pirrandi hér á landi að geta nánast hvergi farið með með vinum á pöbb um helgar í þeim tilgangi að spjalla saman í rólegheitum yfir ölkollu. Allt er útúrtroðið allsstaðar, af ofurölvi fólki, og músíkin stillt svo hátt að venjulegar samræður eru ómögulegar, fólk þarf að...

Re: Forsetar BNA 25 hluti. Roosevelt

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Flott grein, og alveg er ég sammála þér varðandi samanburðinn á FDR og Bush. Og vel til fundið hjá þér að koma með þann punkt. Mér finnst í góðu lagi að greinarhöfundar skjóti stundum sínu persónulega áliti að í stuttum athugasemdum, svo lengi sem það truflar ekki meginmálið of mikið og breytir efninu í hreinan áróður. Þú gerir þetta smekklega og í hófi, ferð alls ekkert yfir strikið.

Re: Arab-Ísraelsku stríðin - Yfirlit

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Þegar maður spáir í því, þá er þetta rétt. Mannfall er yfirleitt mun hærra hjá þeim sem tapa. Ein mjög stór undantekning er hinsvegar á þessari reglu, Sovétríkin í WWII. Þau unnu, en misstu samt margfalt fleira fólk en Þjóðverjar. Í stríðum sínum við Ísrael grunar manni að Arabar hafi ætlað sér eitthvað svipað, að sigra fámennari en tæknilega fullkomnari óvin á mannfjöldanum einum saman, skítt með þó það kostaði mannfórnir.

Re: Arab-Ísraelsku stríðin - Yfirlit

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Samkvæmt upplettingu á Wikipedia (sem ég hef í þessu tilfelli enga ástæðu til að rengja), var það 2656 fallnir, 7250 særðir. Í Sex daga stríðinu var það 780 fallnir, ca 3000 særðir. Í báðum stríðum var mannfall Araba margfalt meira.

Re: Arab-Ísraelsku stríðin - Yfirlit

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég er reyndar að lesa nýja bók um Yom Kippur stríðið núna, og ekki kominn mjög langt. Kannski kemur eitthvað fram um þetta þar, og þá mun ég að sjálfsögðu koma því að í greininni væntanlegu. En satt að segja hljómar þetta eins og týpískur ísraelskur rembingur; á þessum árum voru þeir alltaf vanir að segja - hvað sem gerðist - að þetta væri allt fyrirséð, og allt í samræmi við þeirra snilldaráætlanir. Öllum heimildum ber hinsvegar saman um að Ísraelsmenn hafi í fullri alvöru verið í...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok