Við frúin eigum eins og hálfsárs afa-og-ömmu hnátu sem er oft hjá okkur í pössun Hún gerir og segir oft ýmislegt fyndið. Hún hefur óskaplega gaman af að horfa á dýrin á Animal Planet, og og reyna að segja hvað þau heita. Fyrir stuttu var þáttur um apa, og þá leit sú stutta spurnaraugum á okkur, eins og til að spyrja “Hvað heitir þetta dýr?” Og við svöruðum, “Þetta er API” “Pabbi” sagði hún þá, og enn hefur ekki tekist að leiðrétta það. Þegar api birtist í sjónvarpinu, bendir hún og segir...