Man þegar þessi mynd var í bíói, að Mogginn neitaði að auglýsa hana með íslenska titlinum. Þeir settu svona svartan borða yfir, R***u mér, en leyfðu þó franska titlinum þó að halda sér. Mér datt nú ekki í hug að borga mig inná þessa mynd, enda skildist mér á öllum mínum vinum sem sáu hana að hún væri pjúra krapp, hardcore klám (og hrútleiðinlegt að auki) dubbað upp sem “listræn” frönsk mynd.