Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

DutyCalls
DutyCalls Notandi síðan fyrir 19 árum, 7 mánuðum 52 ára karlmaður
1.644 stig
_______________________

Re: Ævisaga

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Jamm, annaðhvort það, eða desperat hróp á hjálp… ætli það séu laus pláss á Vogi eða Bugl yfir hátíðarnar?

Re: Smávegis um þýðingar

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Það er auðvitað sjónarmið. Annars er voða erfitt að fara eftir einhverjum ströngum reglum um þetta, meta þarf hvert tilfelli fyrir sig. Mjög gott dæmi um “betur óþýtt” er t.d. í bókinni “Innrásin mikla” úr heimsstyrjaldarseríu AB (Gráu bókunum): Þar var sagt að Breskum almenningi hefði þótt Ameríkanarnir “of fjáðir, of kynhvatir og of nærri”. Sem er afskaplega slæm þýðing á “Overpaid, Oversexed and Over here”. Gl.J Kv DC

Re: Vond lög með góðum hljómsveitum

í Rokk fyrir 19 árum, 1 mánuði
Úps :/ Jæja, en ég stend nú samt við allt sem ég sagði um GnR ;)

Re: Vond lög með góðum hljómsveitum

í Rokk fyrir 19 árum, 1 mánuði
Man nú ekki í svipinn eftir neinu sérstöku, en læt kannski vita ef eitthvað dúkkar upp. En mikið djöfull er ég sammála þér með Guns n Roses. Hvergi sannaðast það betur en á þessu “Use your Illusion, I og II” peningaplokki þeirra. Ef þeir hefðu bara hent öllu fökkin draslinu og sett góðu lögin á einfalda plötu, hefði hún bara orðið mjög góð. En nei, þeir þurftu þess í stað að gefa út þennan helvítis langhund fullan af rusli. Enda sögðu margir “Think I've lost my Appetite”.

Re: Mynd

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég verð nú að vera sammála málshefjanda. Mér finnst reyndar í góðu lagi að birta myndir af “sögulegum” skotvopnum, vopnum sem líklega hafa átt stóran þátt í að móta mannkynssöguna. Slíkt á fullan rétt á sér á “sagnfræði” allavega á meðan ekkert sér skotvopna- eða hernaðaráhugamál er stofnað hér á Huga. Hvað sem síðar verður, er Colt M4A1 ekki nærri því orðin “söguleg” ennþá, og væri ég stjórnandi hefði ég líklega ekki samþykkt myndina.

Re: Æskuár Hitlers

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Góð grein hjá þér. Sérlega vel líkaði mér við innganginn, sem er mjög í anda þeirra sem ég hef oft haft á mínum greinum hér. Varðandi þetta nafnamál Hitlers, þá hefur líka lengi verið bent á það hversu fáránlega “Heil Schicklgruber!” hefði hljómað! ;) Sammála fleirum (þó þessi grein standi reyndar ágætlega ein og sér) um að unglings- og fyrstu fullorðinsár hans eru alveg efni í framhald. Bara eitt smá nöldur samt: Fékk nú ekki (við quick-look) mikið vit útúr þessum link sem þú vísar í sem...

Re: Oscar Dirlewanger

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hann er að mig minnir þekktastur fyrir að hafa stýrt verstu morðingjasveit SS í Varsjáruppreisninni. Hef ekki séð mynd af honum áður, og rétt sem einhver sagði, hann er svona nett perralegur.

Re: Mongólski herinn á tímum Khananna

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Þetta var nú bara ágætis lestur. Að sumu leyti voru Mongólar vissulega “stormsveitir” síns tíma. En ólíkt herjum Hitlers mörgum öldum síðar, áttu þeir líkega aldrei von um að geta haldið öllum sínum landvinningum til lengdar. Mér hefur alltaf þótt það vera villandi þegar sýnd eru kort af Veldi Mongóla þar sem nánast öll Evr-asía er lituð. Nær væri að sýna einhverja litla flekki víðsvegar um kortið.

Re: Varsjárbandalagið

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Fín mynd og fínn texti með henni, bara eitt sem fór í taugarnar á mér: Þú ert þarna með tilvitnun í Bréznev, á ensku. Why? Ég er auðvitað ekki að segja að þú hefðir átt að hafa hana á frummálinu, rússnesku, sem afskaplega fáir íslendingar skilja. Þú hefðir einfaldlega átt að snara þessari tilvitnun úr ensku yfir á íslensku. Sjálfur nenni ég sjaldnast að snara tilvitnunum séu þær beint úr ensku. Það skilja jú nánast allir íslendingar málið, og oft vill eitthvað af merkingunni tapast, eða...

Re: Yfirmenn

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hljóta að vera bræður, jafnvel fjórburar - þeir eru svo helvíti líkir allir… bræðurnir “von Daltón” kannski :D

Re: Löng grein um Óðinn, galdra og skáldskap

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Vá! Virkilega flott grein :) Meira hef ég ekki um það að segja, þar sem efnið er ekki alveg í minni deild - erfitt að setja út á eitthvað sem maður veit ekkert mjög mikið um. Hefðir kannski mátt skipta þessu í tvo hluta - þetta er heldur lengra en maður á að venjast hér á Huga, og fælir kannski einhverja frá lestri. En hvað um það - þetta var frábær grein, gæti bara vel verið sú besta sem ég hef séð hér hingað til.

Re: Tupelov TU-95

í Flug fyrir 19 árum, 1 mánuði
Stórt módel af stórri vél. Þetta gæti líklega gert þónokkurn skaða ef það flygi innum glugga einhversstaðar.

Re: Fyrsta loftárásin á London

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Þessar vélar voru traustari en þær litu út fyrir. Þær flugu frá Belgíu yfir Ermarsundið til London og (flestar) tilbaka. Og skömmu eftir stríðið flugu mjög svipaðar breskar flugvélar yfir Atlantshafið.

Re: Fyrsta loftárásin á London

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Mikið rétt, enda var ég nú frekar að meina þá sem sendu þá í leiðangurinn, heldur en flugmennina sjálfa ;) Það er nokkuð óumdeilt að það voru Þjóðverjar sem byrjuðu á loftárásum á almenning óvinalanda sinna, víðs fjarri víglínunni.

Re: Fidel Castro

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Já, maður sér nú alveg svipinn, en gaman yrði samt að gera smá tilraun: Láta einhverja FBI-andlitsfræðinga fá myndina (án þess að segja hver þetta er), og láta þá gera manninn 50 árum eldri í tölvu. Ætli þeir myndu þekkja mannin þá?

Re: Stærsta kjarnorkusprengja í heimi

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Var. Það var bara ein svona smíðuð og sprengd, árið 1961 - og það var gert bara til að sýna að það væri hægt að smíða svo stóra sprengju ,týpískt fyrir Rússana ;) Eins og það var orðað í bók sem ég las um þetta, þá er þó maður á annaðborð sjái einhverja “praktík” við kjarnorkustríð almennt, þá eru 50 mt sprengjur brjálæðislega ópraktískar. 10 eins mt sprengjur gera sama eða jafnvel meira “gagn”. Öflugasta sprengja sem Bandaríkjamenn sprengdu nokkurntíman var “CASTLE BRAVO” árið 1954,...

Re: Machu Picchu, eða „ Týnda borg Inkana“

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Mig minnir það, en er ekki viss (langt síðan ég las um þetta).

Re: Nasista dulspeki

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Þetta er reyndar mjög áhugavert efni, og þessi fína Wikipedia-grein coverar það mjög vel, takk fyrir að benda mér á hana :) Það er reyndar búið að skrifa þónokkuð um þetta hér á landi. Þú ert örugglega búinn að lesa “Að Hetjuhöll” spjaldanna á milli, en Arthúr Björgvin Bollason skrifaði líka áhugaverða bók um þetta, “Ljóshærða villidýrið”.

Re: Druidar?

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Nú, hvað helduru? Þeir hlusta á Ozzy, bíta hausa af hænum, fá sér kók í nös úr nammiskálum, og halda villtar orgíur með óspilltum meyjum! …djók, ekki veit ég hvað þeir gera, veit bara að ef að pabbi minn væri í einhverju svona vitleysingjafélagi, væri ég ekkert að auglýsa það.

Re: Þrjátíu Ára Stríðið

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Alls ekki slæmt, þetta er líka um það tímabil sögunnar sem maður hefur hvað minnst nennt að stúdera. Ég nenni ekki að vera eins og Bubbi í Idol og pirra mig yfir einhverjum smáatriðum sem fóru í taugarnar á mér - í heildina er þetta fín grein, og haltu endilega áfram að skrifa :)

Re: Inkar og lífshættir þeirra

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
Flott grein :) Og gaman að nefna að ein af bókunum sem þú nefnir sem heimild, “Hin týnda borg Inkanna” var með mínum uppáhalds bókum þegar ég var smástrákur.

Re: Machu Picchu, eða „ Týnda borg Inkana“

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
…og spáið líka í því að umheimurinn vissi ekkert af þessari borg fyrr en 1911 (ef ég man rétt) þegar fornleifafræðingurinn Hiram Bingham fann hana. Hann var svona Indiana Jones-týpa sem leitaði að týndum fjársjóðum útum allan heim.

Re: Heiðursmaðurinn?

í Gullöldin fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég hef nú haft svoldið gaman að þessu uppátæki hans, en bráðum fer nú að verða nóg komið, nóg að segja brandarann einu sinni.

Re: ICELANDAIR Dc-10

í Flug fyrir 19 árum, 1 mánuði
Takið líka eftir að áttan þarna á bakvið er enn í Loftleiðalitunum, og tían er merkt bæði “Icelandic” og “Icelandair”. Loftleiðamenn gátu ekki sætt sig við að Icelandair-nafnið yrði notað um sameinaða félagið.

Re: Tillaga um nýjan Þráð hérna inn á sagnfræði!

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 1 mánuði
No worry, mér finnst nú alltaf þægilegra að vakna við píp í vekjaraklukku en sérsveitarmenn að brjóta upp útidyrahurðina, hehehe
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok