Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

DutyCalls
DutyCalls Notandi síðan fyrir 19 árum, 7 mánuðum 52 ára karlmaður
1.644 stig
_______________________

Re: Andstæðingasaga I : Messerschmitt Bf 109

í Flug fyrir 19 árum
Þakka þér (og hinum aðilanum) fyrir ábendinguna. Þetta er allt spurning um orðalag, ég hefði getað orðað þetta betur. En ég bar þessar vélar ekki beinlínis saman, sagði aðeins að Spitfire Mk. IX hefði gert Bf 109F úrelta. Enda fóru Þjóðverjar að skipta F út fyrir G um það leyti sem fyrst fór að verða vart við Mk. IX.

Re: Álit mitt á myndum Quentin Tarantino

í Kvikmyndagerð fyrir 19 árum
Fín upptalning hjá þér, en verð þó að benda á eina smá-villu hjá þér. Woddy Allen er hvorki asískur né evrópskur, fæddur og uppalinn í New York! En ég veit alveg hvað þú meinar (hann er ekki Hollywood-leikstjóri) þannig að ég ætla ekki að nöldra meira yfir því ;)

Re: Andstæðingasaga I : Messerschmitt Bf 109

í Flug fyrir 19 árum
Aldrei að vita, það gæti bara vel skeð. Hún er náttúrlega gífurlega áhugaverð.

Re: Hvað þýðir MDCCLXXVI

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Rétt. Smá mistök sem ég áttaði mig á eftir að ég sendi :)

Re: Hópar sem Adolf var ámóti?

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Hann var nú alls ekki jafn mikið á móti kapítalisma eins og hann vildi vera láta. Stóru þýsku auðhringirnir styrktu hann til valda, og græddu stórar fúlgur á hervæðingu hans. Ef þú gleymir einhverju, þá er það að hann var á móti drykkju, reykingum og kjötáti. En hann mátti eiga það að reyndi ekki að troða þeim skoðunum uppá aðra, ólíkt mörgum í dag!

Re: Einhver með góð ráð...?

í Tilveran fyrir 19 árum
Hlammaðu þér í sófa, breiddu yfir þig teppi, og hafðu (auk snýtuklúta) heitt kaffi og fleyg af konjakki á stofuborðinu. Skelltu svo einhverjum af þínum all-time uppáhalds bíómyndum í spilarann. Eftir svosem klukkutíma muntu hætta allri sjálfsvorkunn, skapið mun batna, sársaukinn í hálsinunum mun linast, og þú munt gleyma þér í myndinni. Þetta bætir líka upp hina hroðalegu vanlíðan yfir að þurfa ekki að rífa þig upp og hlaupa út í frostið til að fara í vinnuna eða skólann morguninn eftir :)

Re: Hvað þýðir MDCCLXXVI

í Sagnfræði fyrir 19 árum
1776 lýstu 13 nýlendur Bretakonungs í Norður-Ameríku yfir sjálfstæði sínu, og kölluðu sig uppfrá því Bandaríki Norður-Ameríku. Þannig að ef við yrðum 53. ríkið í Bandaríkjunum, yrðu TV-dinnerarnir okkar líklega “1776-réttir” :D

Re: Júlíus Caesar 1. hluti

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Svo maður sé einu sinni bara “fáorður en góðorður” : Mjög fín grein :)

Re: Hvað þýðir MDCCLXXVI

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Já, 1776, og útleggst þannig: M = 1000 D = 500 CC = 200 L = 50 XX = 20 VI = 6 …og svo er bara að lesa útúr rununni og leggja saman! Þegar maður spáir í Rómverska númerakerfinu, skilur maður alveg afhverju það arabíska varð ofaná :)

Re: Ein eða tvær spurningar varðandi morðið á JFK...

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Ég er sammála því að GÆTU hafa verið fleiri en Oswald sem skutu Kennedy… en ekki það að tugþúsundir starfsmanna við Appolló-prógrammið hafi allir þagað yfir samsærinu, meirað segja áratugum saman - já, og Rússarnir þögðu líka yfir ameríska tungferðasvindlinu! En Kennedy-málið er annars svo umvafið þoku hálfsannleika og hreinna lyga, að mjög erfitt er að rýna í gegn. Þess vegna er ég afskaplega latur við að ræða um samsæriskenningar yfirleitt, það eru oftast leiðinlegar og vita gagnslausar...

Re: Ein eða tvær spurningar varðandi morðið á JFK...

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Ég er nú yfirleitt afskaplega skeptískur á samsæriskenningar yfirleitt, t.d. fannst mér “JFK” Olivers Stone í heildina óttaleg þvæla (án þess þó að ég nenni að fara útí einhverjar rökræður um einstök atriði þeirrar myndar). Ég er með öðrum orðum ekkert svakalega trúaður á samsæriskenningar um JFK-morðið, en get þó gefið sumum þeirra það að þær standast mínútu-umhugsun. Það gera t.d. “Fake moon-landings” og allar hinar margvíslegu 9/11 kenningar ekki.

Re: Sir Francis Drake

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Hehe, ekki í fyrsta skiptið sem ég er spurður, eða fyrsta spurningakeppnin. Hef bara aldrei komið því í verk að taka þátt. Ætli maður reyni ekki fyrir næst (og verði þá pottþétt ferlega óheppinn með spurningar og verði sér til skammar fyrir framan alþjóð) :D

Re: Smá nöldur.

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Þakka “tilnefninguna” :) Annars er ég að mörgu leyti sammála því sem Lecter segir hér að neðan. Núverandi stjórnandi, þó hann sé einn núna, sinnir því hlutverki mjög vel. Það er líklega hans að velja “meðstjórnendur” ef honum þykir þörf á því.

Re: Meistarinn

í Tilveran fyrir 19 árum
Já, ég hélt þetta líka, að ózón væri O3. Hélt að eitthvað væri minni takmörkuðu efnafræðikunnáttu farið að förlast þegar Logi gaf rétt fyrir O2. Var það ekki líka Logi Bergmann sem í einhverjum spurningaþætti gaf rangt fyrir að svara að trommari Metallica héti Lars Ulrich? Maður ætti nú að eiga heimtingu á skaðabótum fyrir svonalagað! :D

Re: dachau Concentration Camp

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Sammála, plús það að “Munich” er enska heiti borgarinnar (og ekkert að því í sjálfu sér). En hér á landi er það ekki notað, heldur “München”, á frummálinu.

Re: Jersey Devil

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Þetta á nú frekar heima á Dulspeki en sagnfræði.

Re: Sir Francis Drake

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Fín grein. Drake er enn í dag ein af mestu þjóðhetjum Breta, þó ferill hans hafi á köflum verið ansi vafasamur ;)

Re: Most Haunted...

í Tilveran fyrir 19 árum
Mér finnst hún fyndin… eitthvert fólk að reyna að elta drauga með vídeókamerur og annaðhvort sannfæra sjálft sig um návist þeirra, að gera sér upp einhverja drauga-hysteríu. Ná svo aldrei neinu á kamernurar nema kannski ryk-korn sem glampar á. Enda hef ég aldrei séð draug, og held að draugar yfirleitt séu hjátrúar-þvæla. Konan mín er hinsvegar mjög trúuð á drauga, og fylgist spennt með hverjum þætti á meðan ég sit í tölvunni. Sú er reyndar eina ástæðan fyrir að ég sé þessa þætti í hverri viku.

Re: Judas Priest

í Gullöldin fyrir 19 árum
Sammála einhverjum fyrri ræðumanni um að Stained Class er drullufínn, en Sad Wings of Destiny er miklu betri.

Re: Óhugsanlegt

í Vísindi fyrir 19 árum
Ég held að þessi spurning þín sé frekar heimspekileg (eða jafnvel málfræðileg) fremur en vísindaleg. Auðvitað værirðu að sjá ljósið sem væri að KOMA frá Heklugosinu, þó svo þú vissir að gosið varð fyrir mörgum árum síðan. Annars eru líklega enn margir mannsaldrar í að mannkynið eigi fullkomlega eftir að skilja eðli tímans og samspil hans við ljóshraðann. Vísindin eru ekki enn jafn fullkomin og við höldum, við skulum minnast þess að um aldamótin 1900 sagði einhver sprenglærður maður að búið...

Re: Jimi Hendrix og Eric Clapton

í Gullöldin fyrir 19 árum
Jújú, þetta eru þeir. Líklega tekið í London einhverntíman meðan Hendrix bjó þar, 1966-67. Þá var London aðal-staðurinn í tónlistarheiminum, jafnvel meiri en á öðrum tímabilum.

Re: Myndband af Kamikaze árásum

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Já þetta þótti mikill heiður, að fórna lífi sínu fyrir keisarann. Það voru haldnar einhverjar helgiathafnir fyrir þessi flug, en ekki held ég þó að Hirohito hafi sjálfur verið viðstaddur neina þeirra.

Re: Myth Busters

í Tilveran fyrir 19 árum
Frábærir þættir, by the way.

Re: Myndband af Kamikaze árásum

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Einhver bandarískur aðmíráll í WWII (man ekki hver) þakkaði bara guði fyrir að Japanir hefðu ekki skipulagt þessar árásir sínar betur. Ef þeir hefðu t.d. látið 5-10 vélar ráðast á eitt skip, í stað þess að ráðast allar handahófskennt hver á sitt skipið, hefðu Kanar engum vörnum við komið, og hefðu lent í mjög alvarlegum vandræðum. Þannig að hugmyndin var kannski ekki beint léleg frá hernaðarsjónarmiði, bara hryllilega illa útfærð. Að auki var smá sálfræðilegur “fear factor” í þessu, Kanar...

Re: Dani bað að heilsa Rudolf Hess!

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Ekki “hvað?”, heldur “hver?” Rudolf Hess var nazistaforingi sem hoppaði uppí flugvél og stakk af til Bretlands, ætlaði að semja frið við Breta, en var að sjálfsögðu settur beint í stríðsfangabúðir. Það var djókurinn hjá Dananum í bíóinu þegar Hitler steig uppí flugvél. Skilljú?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok