Þjóðverjar voru ferlega óheppnir með flugvélar eftir stríð. Til að leysa þessar gömlu F-86 af, keyptu þeir eitthvert shitload af F-104 Starfighter, gott ef þýska pöntunin bjargaði ekki Lockheed frá gjaldþroti. Þessar vélar, sem áttu að vera það nýjasta og besta, voru meingallaðar og kostuðu tugi þýskra flugmanna lífið. Það var ekki fyrr en Þjóðverjar tóku sjálfir þátt í hönnun og smíði sinna véla sem þeir eignuðust almennilega orustuflugvél, Panavia Tornado.