Góðar og þarfar pælingar, bæði hjá Agli og þér. Ég hef nú ekki enn séð “V for Vendetta”, en af trailerum að dæma sýnist mér framtíðar-fasisminn þar gerður alltof líkur þeim gamla sem tíðkaðist hjá Hitler og Mussolini. (Og hjá Stalín auðvitað líka, sé talað um alræðisríki almennt, ekki bara fasisma). Nútímafólk sættir sig aldrei við hersýningar með gæsagangi og einræðisherra öskrandi á lýðinn á risaskjám. Sá fasismi sem virðist vera í fæðingu í USA núna er mun lúmskari, hann er “endurbættur...