Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

DutyCalls
DutyCalls Notandi síðan fyrir 19 árum, 7 mánuðum 52 ára karlmaður
1.644 stig
_______________________

Re: Kvikmyndagetraun

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Come and See. Alveg skelfilega leiðinleg og hroðalega ofmetin rússnesk mynd.

Re: MiG 28

í Flug fyrir 18 árum, 10 mánuðum
…og reyndar held ég engin MiG orrustuflugvél gegnum tíðina hafi borið slétta tölu. Held að það sé eitthvað í sovéska nafnakerfinu, orrustuvélar fengu oddatölur, aðrar tegundir sléttar tölur. Er samt ekki alveg 100% viss. Annars man ég að flugáhugamönnum þótti nokkuð skondið að sjá F-5 (fremur ómerkilega bandaríska vél) í “Top Gun” dubbaða upp sem einhvern rússneskan ofur-fighter. Ekki þótti þessi MiG-28 nafngift ófyndnari!

Re: Grein

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Mér finnst það ágætis regla að fólk skrifi greinar á íslensku - en allt í lagi að gera stundum undantekningar, enda sýnist mér það gert á öðrum áhugamálum hér.

Re: Bismarck

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Skv. Wikipedia, skipin sem tóku á einn eða annan þátt í leitinni að Bismarck: The British battleships HMS King George V, Prince of Wales, Ramillies, Revenge, Rodney, and Nelson. The British battlecruisers HMS Hood, Repulse and Renown The British aircraft carriers Victorious (800Z and 825 Naval Air Squadrons) and Ark Royal (810, 818, and 820 Naval Air Squadrons) The British heavy cruisers HMS Suffolk, Norfolk, Dorsetshire, and London; and Exeter, with convoy WS-8B. The British light cruisers...

Re: HMS Hood

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Rangt, þau voru mjög svipuð. Hood var 48.360 tonn, Bismarck var 50.900 tonn.

Re: Áhrif Usa á Ísland

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Fínn spurningalisti hjá þér. Þú ert þarna svolítið að fara inná svið sem kallast “alternate history”, sem byggir á “hvað ef?” pælingum og hæfilegri blöndu af skynsemi og ímyndunarafli. Meira um þetta hér ef þú hefur áhuga: http://www.alternatehistory.com/discussion/index.php Annars ráðlegg ég þér að stúdera þessar spurningar sjálfur, það hefur ýmislegt verið skrifað um samskipti Íslands og USA, td eru bækur Vals Ingimundarsonar mjög ítarlegar.

Re: Áhugi fyrir grein?

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Í fyrsta lagi (og eins og fyrsti álitsgjafi benti á) er hér þegar þó nokkuð af greinum um “meistarann” eins og þú kallar hann. Það er svosem í lagi að sjá fleiri, séu þær vel skrifaðar og bæti einhverju nýju við, en… Í öðru lagi: Sérðu einhverja hakakrossa og eða slagorð í “bannernum” hér? Eða eitthvað í “tilgangi áhugamálsins” um að vernda hinn aríska kynstofn o.s.frv ? Þó að hér séu mikill áhugi á WWII og öllu því sem fylgir, þar á meðal nazistum, hefur mér aldrei sýnst þetta vera einhver...

Re: Jeij

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já, endilega leyfðu okkur að lesa hana. Í mínu ungdæmi, þegar maður var búinn að leggja ómælt erfiði í svona “stórvirki”, las það yfirleitt enginn nema sögukennarinn sem krotaði “Gott, 9.0” á síðustu síðuna. Og líka auðvitað vinir manns, kannski ekki alveg jafn sögu-áhugasamir. Þeir fengu ritgerðina á næstu önn, breyttu orðaröð hér & þar og skiluðu - og fengu að sjálfsögðu sama “Gott, 9.0” krotað á hana! ;) Í dag geta menn þó “gefið út” ritgerðina á netinu, þar sem aðrir áhugamenn lesa hana...

Re: Ólympíuleikarnir til forna!

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Alveg ágætis grein :)

Re: Ólympíuleikarnir til forna!

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hehe, já þetta sýnir hvernig forgangsröðunin hefur breyst eftir því sem mannkynið hefur “þroskast” ;)

Re: Hvað er þetta?

í Flug fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þetta er náttúrlega algjör skyldueign flugáhugamanna, þessi bók. Og nei, ég er reykvísk miðbæjarrotta :)

Re: Hvað er þetta?

í Flug fyrir 18 árum, 10 mánuðum
The Encyclopedia of Modern Military Aircraft. Keypti hana í Eymundsson fyrir sirka ári síðan, held að hún sé enn til þar.

Re: Hvað er þetta?

í Flug fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já, það er líka ágætis vél. Samkvæmt bók sem ég á var hún notuð af Sovétmönnum í Afganistan með ágætis árangri, af Írökum í Íran-Írak stríðinu og gegn skæruliðum í Angóla. Svo hefur hún séð þónokkuð aksjon í Tjétsníu og fleiri fyrrum Sovétlýðveldum.

Re: Lítill drengur

í Gullöldin fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég var líka frekar unglegur um & eftir tvítugt.

Re: Lítill drengur

í Gullöldin fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Réttara sagt: Þú ert að finna hæðinn fnyk dauðans í köldu loftinu ;)

Re: Svekk

í Flug fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Tjah, ég veit svolítið um flugvélar, og þó þarna hafi sennilega bara klæðningin farið af öðrum hreyflinum og lítil hætta á ferðum, myndi mér sko definately þykja þetta ógnvekjandi. Þetta er allavega ekkert sem mig langar að sjá útum gluggann næst þegar ég er á leiðinni til London eða Köben ;)

Re: Lausn á varnarmálum Íslands - China

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Má vel vera að Kínverjar séu afskaplega “upplýstir”, en það eru stjórnvöld sem ákveða hvað almenningur má sjá og heyra. Það er ömurlegt að bæði stjórnvöld og einkaaðilar á Vesturlöndum séu sífellt að lúffa fyrir kínverskum stjórnvöldum peninganna vegna - ekki síst vegna þess að Kínverjar eru alræmdir fyrir að virða engin höfundarréttarlög. Google-dæmið er það nýjasta. Let's face it: Þó Kína sé vissulega vaxandi stórveldi, þá er það einnig alræðisríki, sem engir lýðræðissinnar ættu...

Re: Wargames

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Missti nú af henni í gær, en Wargames er ein af þessum klassísku 80s myndum sem alltaf vekja upp skemmtilegar minningar hjá mér.

Re: Hvað er þetta?

í Flug fyrir 18 árum, 10 mánuðum
A-10 Thunderbolt, en vanalega kölluð “Warthog” (vörtusvínið). Sérhönnuð í “close support” hlutverkið, semsagt að fljúga lágt og hægt yfir vígvellinum og gera árásir á skriðdreka og lið óvinarins. Líklega sú besta ever á sínu sviði, helst að hin sögufræga rússneska Il-2 Sturmovik úr WWII skáki henni.

Re: Lausn á varnarmálum Íslands - China

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hehe, í Fréttablaðinu í dag var grein um að Tyrkir séu nú að verja lofthelgi Eystrasaltslandanna, þannig að þetta er kannski ekki eins langsótt og fyrst virðist :D

Re: Fasismi í framtíðinni?

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Jamm, mig minnti að hafa einhverntíman lesið hana á íslensku, og jújú - fann hana rykfallna í bókahillunni innan um Alistair MacLean og Jack Higgins ;) Þegar maður spáir betur í því, þá er nú alveg kominn tími á 3. útgáfu, með góðum formálum bæði um söguna sjálfa og höfundinn (slíkt vantar alveg í þessa 2. útgáfu sem ég á). “1984” á jafnvel meira erindi við okkur núna en áður.

Re: Móðurlandið kallar

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
82 metrar með sverðinu skilst mér. Sem er helvíti stórt, t.d. talsvert hærra en Hallgrímskirkja (76 m). En styttan sýnist hærri á myndinni, ég giskaði fyrst á 150 metra. Líklega yrðu hlutföllin greinilegri ef maðurinn stæði framan við styttuna, ekki aftarlega til hliðar við hana eins og hann greinilega gerir.

Re: Fasismi í framtíðinni?

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Jú, 1984 er til á íslensku, þýdd af Hersteini Pálssyni og Thorolf Smith. Fyrst útgefin 1951, endurútgefin 1983.

Re: Fasismi í framtíðinni?

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
hmmm… prófaðu að fara til Kína, þar eru víst ennþá settar upp svona sýningar á tyllidögum ;)

Re: Fasismi í framtíðinni?

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já, mun fara á myndina mjög fljótlega. Annars svoldið skondið að John Hurt skuli leika einræðisherrann, hann lék líka Winston Smith í “1984” á sínum tíma, annari sögu sem varaði við hverskonar alræðishyggju.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok