Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

DutyCalls
DutyCalls Notandi síðan fyrir 19 árum, 7 mánuðum 52 ára karlmaður
1.644 stig
_______________________

Re: Scorpions

í Gullöldin fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég myndi frekar setja þá í rokkið.

Re: Sögukennslan hjá B2 klikkar aldrei....

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Já, ekkert ógurlegt mál að finna þetta. Ég fann einhverntíman “fuhrer's face” og “bugs bunny nips the nips” einhversstaðar, bara nennti ekki að finna það aftur núna. Ertu búinn að kíkja á linkana á Wikipedia? þeir gætu leitt þig eitthvað. Ég fann bara eitt í mínu “linkasafni” með gömlum áróðursmyndum: http://www.signalalpha.com/index.html Þarna eru einhverjar teiknimyndir innanum, minnir mig. Annars er það bara “leitið og þér munuð finna” :)

Re: Sögukennslan hjá B2 klikkar aldrei....

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Neinei, Andrés var (eins og t.d. Bugs Bunny og Daffy Duck) oft notaður í áróður í WWII. Þekktasta myndin var örugglega “Der Fuhrer's Face” sjá http://en.wikipedia.org/wiki/Der_Fuehrer%27s_Face …þarna má svo einnig finna linka inná fleira fróðlegt.

Re: Kjarnorkustríð?

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Sýnist þér að Georg & félagar hafi undanfarin 5 ár eða svo gefið jackshit um hvað Öryggisráð SÞ segir? Innrásin í Írak var t.d. ekki með samþykki Öryggisráðsins. Þetta svokallaða “Öryggisráð” er (og hefur alltaf verið) svo vita gagnslaust að best væri að leggja það niður og spara skattgreiðendum Vesturlanda dágóða summu árlega. Og sýnist þér einhver önnur stórveldi heimsins vera á leiðinni í stríð við USA? Nei, líklega er þessi kjarnorku-orðrómur bara til þess gerður að Georg & félagar geti...

Re: Lélegar myndir sem þið fýlið?

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Rétt er það. Mig minnir sveimérþá að þessi undirtitill hafi gert útslagið með að ég keypti þennan rykfallna VHS-gimstein á kr. 200 í Kolaportinu á sínum tíma :)

Re: Lélegar myndir sem þið fýlið?

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
…gleymdi auðvitað “On Deadly Ground” með Steven Seagal! I need not say more.

Re: Lélegar myndir sem þið fýlið?

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
“Devil Dog”, hands down! Sjónvarpsmynd frá 1978 með Richard heitnum Crenna (Col. Trautman í Rambó myndunum). Í þessari frábæru mynd er hann fjölskyldufaðir sem kaupir lítinn sætan séfer-hvolp handa börnunum sínum, en kemst svo að því að voffi er andkristur í hundslíki! Need I say more? Svo er “Hell Comes to Frogtown” líklega í öðru sæti, klassískt meistarastykki.

Re: hitler merkið

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
“fugl með hitlermerkið”… Mann langar að senda hér inn íslenska skjaldarmerkið með undirskriftinni “fugl, eðla, belja og jólasveinn, á grjóti með íslenska fánann”

Re: Mynd um Hitler ( Downfall 2004 )

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Takk fyrir ábendinguna, en þessi mynd hefur nú þegar (reyndar fyrir þó nokkrum mánuðum síðan) fengið sinn varanlega heiðurs-sess á DVD hillunni minni, innan um eldri myndir í sama klassa ;)

Re: Lausn á varnarmálum Íslands - Ísland

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Við ættum að horfa til Írlands sem fyrirmynd í landvörnum. Írar hafa afskaplega lítinn her, enda lítill tilgangur í því. En með því að hafa þó sinn litla her, tryggja þeir sjálfstæði sitt gagnvart öðrum ríkjum, (þá auðvitað aðallega Bretlandi og Bandaríkjunum). Þó svo úrslitin yrðu að sjálfsögðu augljós ef stórveldi ætlaði sér að ná völdum yfir Írlandi, þá gætu innrásarmenn ekki bara lagt skipum sínum á hafnarbakkann í Dublin, labbað inní miðborg og tekið öll völd - eins og gert var við...

Re: Hvað hefurðu séð margar á bottom 100?

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Sorrý, meinti náttúrlega “The Incredibly Strange Creatures Who Stopped Living and Became Mixed-Up Zombies!!?”, ekki "Surf Nazis Must Die“. En afhverju eru ekki gullmolar eins og ”Hell Comes to Frogtown“ og ”Death Ship" á þessum lista?

Re: Hvað hefurðu séð margar á bottom 100?

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ekki rassgat að marka þennan lista, hann er háður tískusveiflum - hvurn fjandann væri annars “Basic Instinct 2” að gera þarna, mynd sem enn er í bíói og er í tísku að blasta, eða “Surf Ninjas Must Die”, mynd sem þónokkuð hefur verið til tals í netheimum uppá síðkastið, aðallega útaf fáránlegum titli (ekki að margir hafi actually séð þessa mynd). That said, þá hef ég séð 5 myndir á þessum lista, og man þó eftir mörgum mun verri myndum sem ekki eru á honum.

Re: Steven Seagal

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
HEY!! That hurt! ég er ekki nema 33 ára, en “Under Siege” er ein af mínum all-time uppáhalds hasarmyndum ;)

Re: Veit einhver

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hélt að hún væri til í öllum búðum á 999 kr. Líklega að rugla henni saman við eitthvað álíka (þetta er alls ekkert sérstök mynd). Anyway, ef þú finnur hana ekki í Skífunni eða jafnvel í Bónus, er hún þó örugglega til í 2001 á Hverfisgötunni. Ef ekki þar, þá í Nexus aðeins ofar á sömu götu.

Re: Maximum Overdrive (1986)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Alveg hlægilega léleg mynd, og definatly ein af þeim sem áttu stóran þátt í að skemma hið áður góða mannorð Stephen King í kvikmyndaheiminum. Man að ég sá hana á sínum tíma aðallega útaf AC/DC soundtrackinu, sem var mun betra en myndin.

Re: The Who

í Gullöldin fyrir 18 árum, 10 mánuðum
hehe, hér á landi hefðu þeir líklega verið kærðir fyrir brot á fánalögunum :) Samkvæmt þeim ER fáninn heilagur, hvað sem fólki finnst.

Re: Orrustuskipið Bismarck

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Glæsilegt maður, svona vil ég sjá meira af! Greinar sem ekki eru bara upptalning á staðreyndum, heldur bera líka í sér persónulegt impressíon höfundar á efninu, og eru skemmtilegur lestur. Svo ertu líka með mjög afdráttarlaust “copyright warning” þarna í byrjun, sem bókaútgefendur mættu kannski taka sér til fyrirmyndar ;)

Re: Hver verður Borgarstjóri?

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Verst fyrir Steinunni Valdísi að þetta “neita-launahækkun” stönt hennar verður löngu gleymt þegar kosið er. Það sem hinsvegar ekki gleymist jafn auðveldlega er nýja Hringbrautin, þar sem maður sat fastur í umferðarteppu tvisvar á dag, þar til maður ákvað frekar að slaka á og keyra aðrar lengri leiðir leiðir í & úr vinnu. Ég gæti nefnt margar aðrar ástæður fyrir illu áliti mínu á R-listanum, en nenni því ekki. Persónulega hefði ég viljað sjá Gísla Martein leiða D-listann í vor, en fyrst...

Re: Vekjum áhugamálið!

í Gullöldin fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hvaða kvart & kvein er þetta?! Miðað við sum önnur áhugamál hér, gengur þetta bara fínt! Langt frá því að deyja út.

Re: Beatles

í Gullöldin fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ójá! Þessi skopmynd vanvirðir það sem okkur er heilagt, og nú verðum við bara að gera eins og múslimarnir, hehehe ;)

Re: Varðandi reykingar !!!...

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
…og ekki gleyma því að það var líka reynt hér, með jafn ömurlegum árangri. Það eina sem áfengisbannið áorkaði var aukið virðingarleysi fyrir lögum & rétti (og náttúrlega að við fengum ekki að drekka bjór fyrr en 1989). Það fer reyndar ekki mikið fyrir sögum af einhverjum “Alka-pónum” (Al Capone) hér eins og í USA, en þeir hljóta þó að hafa verið til, án þess að mikið væri skrifað um þá blöðin, eða þeir oft kærðir, hvaðþá dæmdir. Hið versta er þó að í dag er ástandið hér svipað eins og í USA...

Re: Alexander Mikli (á Ensku)

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Mjög fín ritgerð, og enskan er í heildina fín þrátt fyrir nokkrar villur á stöku stað. Keep up the good work :)

Re: Valdaránið í Chile 1973

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Takk fyrir :) Og nei, ég er bara amatör-sagnfræðingur, hvað sem síðar verður.

Re: Kvikmyndagetraun

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Jú, ætli það ekki. Annars var flest “sovétskt” kallað rússneskt, oftast með nokkrum rétti.

Re: Kvikmyndagetraun

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Jíha, ég vann!! Er ekki ferð með icelandexpress í verðlaun? …en þú um það að finnast þessi leiðindalangloka góð ;) Svo er hún gerð á Sovét-tímanum, þá var rússneskt og hvít-rússneskt nánast það sama.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok