Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

DutyCalls
DutyCalls Notandi síðan fyrir 19 árum, 7 mánuðum 52 ára karlmaður
1.644 stig
_______________________

Re: Stalin - The Purges

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
“The Purges” voru “hreinsanir” - herinn og stjórnkerfið allt var “hreinsað” af (oftast ímynduðum) óvinum Stalíns. Myndafalsanir voru nú bara afleiðing af þessu, en gengu kannski skrefi lengra, því þá voru greinar og myndir af viðkomandi einnig “hreinsaðar” úr skjalasöfnum og fjölmiðlum, og bannað að minnast á þá framar - eins og þeir hefðu aldrei verið til.

Re: Rosaleg mynd

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Flott og sjokkerandi mynd, og góð lýsing hjá blaðamanninum. Og þetta var víst ekki eina tilfellið, það voru fleiri af þessum munkum sem gerðu þetta.

Re: Hjálp!!

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Það er nú slatti til um þetta á íslensku, t.d. “Aðdragandi styrjaldar” sem er fyrsta bókin í bókaflokki AB um Seinni heimsstyrjöld, og svo náttúrlega “Að Hetjuhöll” eftir Þorstein Thorarensen (sem ég hef oft vísað fólki á áður). Ég myndi ráðleggja þér að fara á Borgarbókasafnið og biðja starfsmann að hjálpa þér að finna einhverjar bækur um þetta.

Re: Geirfuglinn á góðri stund

í Gullöldin fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Bara gamall íslenskur útúrsnúningur á nafninu hans.

Re: Áströlsk hermerking

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Minnir að þeir hafi verið með Kiwi-fugl

Re: **#&(/)#"&!#&Ö)!#"$()&)!"

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Uss, svona segir maður ekki! …samkynhneigðra-samkoma frá afplánunarstofu eftirlífsins, meinarðu! :D

Re: hvaða kvikmyndir hafa komið ykkur til að gráta?

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Schindlers List - senan þar sem hann gengur inn um hliðið á vinnubúðum sínum með öllum konunum og stelpunum sem hann er nýbúinn að bjarga úr Auschwitz.

Re: Josep Mengele

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Vel mælt, mikið djöfull er ég sammála!

Re: Josep MEngele

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Lestu þetta (eftir annan alræmdan mann, hehe) : http://www.hugi.is/saga/articles.php?page=view&contentId=2630784

Re: Áströlsk hermerking

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Úps :/ …jæja, það er “næsti bær við”

Re: Berlin 1945

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Flott þessi sem stendur þarna í vatninu :)

Re: Áströlsk hermerking

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Jamm, vissara að merkja menn vel. Aldrei hefði mér getað dottið í hug hvaðan náungi merktur með kengúru og búmerang væri. En þetta var náttúrlega fyrir tíma “Nágranna”, hvað þá Russell Crowe :D

Re: Colt Python Hunter

í Veiði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Flott í bíómynd kannski, en mikið skelfilega held ég að það hafi lítinn tilgang að setja kíki á 357. magnum. Hugsanlega bara ef þú settir skefti, “sholder stock” á hana líka. Annars er þetta bara pjúra Hollywood, sem líklega einhverjir bjánar útí USA kaupa.

Re: Hermenn á LSD

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ætla bara rétt að vona að byssurnar hafi ekki verið hlaðnar… “Take that, you blue meanies!!!” , hehehehe

Re: Hermenn á LSD

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Mér þykir reyndar líklegra að þetta hafi einfaldlega verið eitthvert fuckup hjá þeim sem settu þessar myndir á netið, afleiðing slakrar sögukunnáttu.

Re: Valdaránið í Chile 1973

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já, hér er allavega ein, rúmlega ársgömul: http://www.hugi.is/saga/articles.php?page=view&contentId=1963951 Nennti nú ekki að leita lengra aftur, en það gætu vel verið fleiri greinar um Che hérna, hann er nú vinsæll karakter í sögunni. Farðu bara í “Yfirlit” og svo “eldra efni” ef þú vilt leita sjálfur. Láttu þetta samt ekkert stoppa þig ef þig langar sjálfum að senda inn grein um hann.

Re: Albert Einstein

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hehe, mér sýnist þetta vera kvenskór. Klæðaburður var víst aldrei sterkasta hlið Einsteins :D

Re: Þýsk sjónvarpsútsending

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þetta voru víst bara tilraunaútsendingar, en en þó byrjun. Það er reyndar áhugaverð staðreynd að ÓL í Berlín árið 1936 var fyrsti íþróttaviðburður sögunnar sem sjónvarpað var frá, þó auðvitað væru áhorfendur fáir, líklega aðallega í verkfræðideildum stórra háskóla, og hjá stærstu radíó-fyrirtækjum. En þetta var auðvitað magnað publicity-stunt hjá Göbbels & félögum, og komst í heimspressuna.

Re: Sid Vicious

í Rokk fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég hef aldrei skilið dýrkunina á þessum helvítis ræfli, nenni ekki einu sinni að æsa mig við að útskýra það betur - hann er ekki þess virði.

Re: Civilization nördar Íslands, sameinist!

í Herkænskuleikir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Einhverntíman í gamladaga hafði ég fyrir því að búa til “huge” Íslandskort í Civ II. Reyndi að hafa það eins landfræðilega nákvæmt eins og hægt var, en varð þó stundum að taka skáldaleyfi. Anyway, þetta tók örugglega tugi klukkutíma. Svo þegar ég fór að spila á þessu korti, var það eigilega bara leiðinlegt. “Sunnlendingar” með höfuðborgina á Selfossi, urðu auðvitað alltaf langstærstir, með langbestu vaxtarskilyrðin! Það var svosem gaman að spila sem “sunnlendingar” og valta yfir alla hina,...

Re: Valdaránið í Chile 1973

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Nei. Var reyndar hægrisinnaður lengi vel. En í dag er fyrst og fremst réttlætissinnaður. Stjórnmál eru ekki trúarbrögð, og menn ættu ekki að festast í einhverju “dogma”, heldur að fordæma ranglæti hvaðan sem það kemur, sérstaklega þegar menn eru að stúdera sögu. Ég veit vel að þetta hljómar hallærislega, en þessari stefnu hef ég reynt að fylgja í greinarskrifum mínum hér. Þú mátt kalla það “hlutdrægni” ef þú vilt :/

Re: Valdaránið í Chile 1973

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hehe, takk kærlega fyrir það, I'm flattered :) Annars svara ég þessari “uppsleikingu” þinni eins og ég svarað öðrum: Það er frábært að vita að fólk les þessar greinar og hefur gaman af þeim. Þess vegna hef ég nú haldið áfram að skrifa þær :)

Re: Valdaránið í Chile 1973

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Kúl ;) Sjálfur hef ég nú ekki komið þarna, en stefni að því í framtíðinni. En ég vil endilega hvetja þig - sem söguáhugamann sem komið hefur á slóðir sem ekki mjög margir Íslendingar hafa - til að skrifa hér greinar með þínum eigin “impressjónum” af viðkomandi landi og þjóð :)

Re: Hitler

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hef nú ekki séð þennan þátt, en mér þykir þetta alls ekkert ótrúlegt. Eftir sprengjutilræðið í júlí 1944 hrakaði heilsu hans stöðugt, og læknar hans dældu í hann allskonar lyfjum.

Re: Besti Kvikmyndaáratugurinn

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég er algerlega sammála þér. Örugglega yfir helmingur af mínum uppáhaldsmyndum voru gerðar á þessum áratug.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok