Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: hnakkar

í Metall fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Neimar.. þá myndu Gilzenegger pistlarnir í DV hætta.. Mér finnst stórskemmtilegt að lesa þá, þetta er svo skemtmilega veruleikafirrt hjá honum :P

Re: kassagítar

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ekki rétt. Þósvo þú fáir ekki flautu á eðlilegu verði er ekki þar með sagt að allt sé dýrt. Meiri eftirspurn er eftir gíturum, og framboð meira, og þar sem það helst í hendur við álagningu verslana þá eru gítarar ´mjög samkeppnishæfu verði hér, eða allavega allavega þeir sem eru frá framleiðendum sem okra ekki á litlu búðunum.

Re: kassagítar

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Art&Lutherie. Tónastöðin.

Re: Gott plan!

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Hahaha..jáma

Re: nokkrir gítarar

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Eru þetta EMG 85 og 60 í ESPnum eins og mér sýnist? Ef svo er, vel valið! :P

Re: Metal/rock effect ?!

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Hann er fínn til síns brúks.. en “hans brúk” er fyrir framan lélegan SS magnara með einni 8 eða 10“ keilu svo upprennandi metalgítarleikarar geti fengið metalsound úr squiernum og litla magnarakrílinu :P Það er bara eitthvað með þennan pedala og 12” keilur.. það bara fer engan veginn saman :P

Re: könnin, hvað?

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Keypti mér LTD F-50 í janúar Seldi LTD F-50 ( :P ) og Washburn 12strengjagítar í febrúar til að kaupa Line6 Flextone XL

Re: Hvaða?

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Skiptir ekki máli þótt hún sé Færeyingur, Celine Dion er kanadísk en fór fyrir Sviss einhverntímann og vann.

Re: Ég var ekki spurður :-(

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Vá hvað ég var sammála hverju einasta orði hjá þér.

Re: Ekki bestu vinir

í Rokk fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Guns 'N Roses eru enn til, Axl átti einn réttin að nafninu, svo hljómsveitin að nafninu til er enn til, með Axl einan innanborðs af upprunalegu meðlimunum.

Re: HaHa Eurovision Nation

í Söngvakeppnir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Nei, þetta var einmitt takmarkið með þessu ævintýri. Hún fór þarna út með það í huga að sjokkera, og tókst það svo sannarlega, svo hressilega að hún móðgaði júróvisjón nördana sem kunnu engin ráð við því önnur en að buala á hana þegar hún steig á svið. Þessi ferð Silvíu var allsekkert flopp. Takmarkinu var náð.

Re: Filtar svínalundir

í Matargerð fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Svínalundir: 500 gr á mann eða hálf Þú þarft ekki nema 200-250 grömm af beinlausu kjöti á mann, en þar sem svínalundin er vanalegast um hálft kíló, þá passar það sem þú sagðir um hálfa lund. Þyngdin passar hins vegar ekki fyrir þá sem versla eftir vigt.

Re: ísrael

í Söngvakeppnir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ísrael spilar líka með evrópuþjóðum í íþróttum. Ísrael telst hluti af Evrópu þrátt fyrir að eiga engin landamæri að evrópuríki..

Re: Silvía Nótt ? ? ? ?

í Söngvakeppnir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Markmiðið var aðallega að sjokkera, og það tókst svo sannarlega. Það var actually baulað á hana þegar hún steig á sviðið, sem var örugglega framar björtustu vonum um viðbrögð.

Re: Eurovision nördar skoða þetta!!!

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Meira svona þangað til það var leyft að syngja á öðru máli en sínu eigin…

Re: Metallica á Download Festival (old)

í Metall fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Hann átti IMO sína stærstu stund hvað sönginn varðar á sinfóníutónleikunum. Það er ekki fyrren á St.Anger túrnum sem hann fer virkilega að “missa” röddina (fyrir utan þetta skipti við upptökur á svörtu, en hann fór til raddþjálfa og hélt sér þokkalega í ein 10 ár eftir það). En hann er náttúrlega ekki jafn true metal á Load og seinna, en samt að syngja þrusutöff.

Re: eurovision lordi

í Metall fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég gerði heiðarlega tilraun til að kjósa en eftir fimm misheppnaðar tilraunir þá gafst ég upp. Ég ætla bara rétt að vona að ég verði ekki rukkaður fyrir >( Annars fór e´g á stúfana (lesist:Netið) og fann mér slatta af lögum með þeim.. þetta er þrælskemmtileg svona partýmúsík :P

Re: Hjálp!

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
fara með hann aftur uppeftir og fá kallinn til að laga þetta? Í almennilegri búð hefðirðu fenginn gítarinn uppsettan svo hann væri allavega spilhæfur :P

Re: Hjálp!

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Skrúfaðu skrúfurnar sitt hvorum megin á brúnni þangað til strengirnir eru komnir nógu hátt upp til að skrölta ekki (of mikið allavega..) á böndunum.

Re: Metal/rock effect ?!

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Láttu mig þekkja'ða .. var kominn hátt í 10 effekta.. er að vísu búinn að selja og gefa eitthvað, en það eru enn 4 að safna ryki ofan í skúffu hjá mér. Ég nota ekki einn einasta :P

Re: Fimmundahringurinn

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég heyrði þessa sögu þannig að h-ið sé upprunnið í bók frá því áður en farið var að prenta bækur eitthvað að ráði, og munkurinn sem skrifaði bókina á að hafa verið með svo sloppy rithönd að b-ið hans leit út eins og h. Hitt finnst mér samt trúlegra, því prentuð bók er væntanlega framleidd í fleiri eintökum, og dreifist því víðar en handskrifuð.

Re: Fimmundahringurinn

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Taktu eftir því að þar sem “B” ætti að vera er “H”. Sumir læra að B heiti H, og í A#/Bb bara B ..hljómar ruglingslega þegar ég set það svona frá mér :P

Re: gítararnir mínir

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ofnar eru staðsettir svona í mörgum gömlum húsum af einhverri mjög góðri ástæðu sem ég man ekki í augnablikinu. Eitthvað að gera með að hús voru kynt öðruvísi í gamla daga. Pabbi útskýrði þetta einhvern tímann fyrir mér (ofnarnir voru svona í kjallaranum hjá m&p, uppi við loft inni í miðju húsi, og ofnarnir á eftri hæðum líka inni í miðju húsi, en reyndar niðri við gólf).. en ég man bara ekki útskýringuna betur en svona :P

Re: B.C Rich

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
En það er enn fokdýrt að fljúga til USA, svo það er þá mun ódýrara að kaupa hann jafnvel í Gítarnum nema hann hafi góða ástæðu til að vera að þvælast þarna út.

Re: Ephipone black and white

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Meira svona 40-45 þúsund. Annaðhvort talar maður um dollarana eða verð heim komið. Það er of blekkjandi að umreikna bara verðið á netinu yfir í krónur. En ok, þú stakkst upp í mig, bjóst vi ðþví að hann væri uppseldur en þeir eiga greinilega enn einhverja afganga. Hvað varðar reynsluna, þá er þetta pottþétt bara venjulegur '67 V með öðruvísi lakki, sem er gítar sem ég hef góða reynslu af, þósvo þú fáir eflaust eitthvað betra fyrir 40-45 þúsund..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok