Allt þetta eykur líkurnar á að fá “lucid” draum, en algengasta aðferðin er einhvernvegin svona: 1. Byrjaðu að skrifa niður drauma. Vertu með bók og penna hjá rúminu, og skrifaðu drauminn strax og þú vaknar (rifjaðu fyrst upp drauminn áður en þú hreyfir þig). Ekki bíða, vegna þess að þá gleymirðu draumnum. 2. Þegar þú ert kominn með ágætis safn af draumum þá ætti að vera hægt að sjá ýmis atriði sem virðast hafa mikla tilhneigingu til að birtast í draumum. Það gætu verið hlutir, tilfinningar,...