Ég fer næstum aldrei í bíó nú til dags, fer bara sjaldnar og sjaldnar eftir því sem bíómiðinn hækkar. En við vissum alveg að miðinn myndi fljótlega fara upp í 1000 kall, ég meina komm on, hélstu kannski að verðið myndi lækka? Eftir nokkur ár verður miðinn kominn upp í 1500 og svo fer hann í 2000 og svo 2500 og svo framvegis. Svona er þetta bara og þetta hættir ekki fyrr en fólk hættir að fara í bíó.