Ha ha ég þakka.(ég lærði nú um þetta í listasögu uppí MH haha) Ef þetta gengur ekkert hjá ykkur mun ég sennilega benda á eitt þekktasta verk viðkomandi, en ég gef þessu nokkurn sjens enn :)
Sorg er ekki það sem ég er að leita eftir þótt að það passi vel við :) Sammála því að þetta sé nett mynd, lærði um hana í listasögu og verð að segja að hún er ein af mínum uppáhalds. Ótrúlegt andrúmsloft sem mér finnst einnig fylgja henni.
Ég keypti fatalit í litir og föndur sem virkar fínt, lestu bara leiðbeiningarnar, maður þarf að stauja yfir litinn og eitthvað og þá þolir hann upp í 60° þvott. Hef ekki fundið sprey ennþá, ef þú finnur þér þannig láttu mig endilega vita.
Nei ég teikna ekki beint á sjáinn en mig dreymir um þannig borð enda kosta þau um 300 þúsund. Þessi borð eru tengd við tölvuna á þér, flöturinn passar við skjáinn hjá þér og það birtist í tölvunni það sem þú teiknar. Tekur smá tíma að venjast þessu en svo er það ekkert mál :)
Meinaru það? Þau eru algjör snilld (mynd) http://www.flyinggriffin.com/sitebuildercontent/sitebuilderpictures/wacomtablet2.jpg Wacom borðin hafa reynst mér best: http://www.wacom.com
Eins og þetta byrjaði hjá mér þá var ég mest í blýantsteikningum sem ég skannaði svo inn og vann með í photoshop. Nú þegar ég er komin með teikniborð vinn ég oft alla myndina í photoshop. Ég notaði tölvumúsina í mörg ár áður en ég fékk mér teikniborð og var orðin alveg ágætlega flink á hana en það er miklu þægilegra að nota teikniborð. Ef þú sendir mér emailið þitt get ég sent þér mjög einfalt tutorial sem ég gerði fyrir einhvern um daginn sem sýnir grunninn á því hvernig ég nota photoshop....
Ég held að það yrði mjög áhugavert þegar þú leggst í tölvuvinnslu :) Ég vinn annars með Photoshop 7 eða CS4 og já ég á svokallað teikniborð frá Wacom. Var orðin ágæt á mús á tímabili og ég veit um marga sem eru mjög snjallir á hana en eftir að ég fékk teikiborðið snýr maður ekki aftur, það er miklu þægilegra en músin :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..