Ég! Ég! Úff ég er svo ánægð. En í sambandi við stæðin.. þegar ég fór á Beach Boys var búið að raða stólum yfir allt gólfið þannig að maður sat í bæði stúku og stæði. Kannski verður eitthvað svipað gert núna, það vita allir að það er best að sitja og hlusta á Sigur Rós.
Fólk er fífl.. En það sem er eiginlega fyndnast við þetta er það að fólk sem talar ekkert við mig meðan ég er online.. byrjar allt í einu að tala við mig þegar á stilli á busy/away!
Okey.. átti þetta að vera kaldhæðni? Hann bjó ekki til söguna sjálfa um Ödipus. Hann skrifaði þessa útgáfu af henni, já, en sagan sjálf er úr grískri goðafræði. Vona að þetta hafi verið skýrara í þetta skipti.
Jagúar - One Of Us Queen - Under Pressure Jamiroqai - Canned Heat Lipps Inc. - Funky Town Incubus - Drive Sólstrandargæjarnir/Á móti sól - Rangur Maður Bubbi - Stál og hnífur AÐAL partýlögin, a.m.k. að mínu mati;)
Hann bjó samt ekki til þessa sögu.. þetta er úr grískri goðafræði - Ödipus sem varð ástfanginn af móður sinni og drap föður sinn. Sigmund Freud kallaði það þegar sonur er haldinn ást á móður sinni en afbrýðissemi út í föður sinn ‘Ödipusarduld’ (Oedipus Complex) út frá þessari sögu.
Takk fyrir það! Ég var nú bara að spá í þetta.. á nú Hringadróttinssögu eins og hún leggur sig og þar eru auðvitað öll ljóðin. ;) En svona ljóðabók er skemmtileg eign og ég kannski næli mér í eitt stykki svona.
Harry bjargaði sjálfum sér frá því að verða kysstur af vitsugu vegna þess að hann bjargaði sjálfum sér frá því að verða kysstur af vitsugu til þess að geta bjargað sjálfum sér frá því að verða kysstur af vitsugu… Það er ekki hægt að hugsa svona mikið í hringi, maður verður ringlaður!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..