George Best, sem einna þekktastur er fyrir drykkjuskap sinn, er enn að. Læknir hans sendi á dögunum út tilkynningu til breskra vínsala að selja kappanum ekki áfenga drykki. Læknirinn, sem heitir Roger Williams sagði að allir þekktu hann, allir elskuðu hann og að allir vildu hjálpa honum. Það gerðu þeir með því að selja honum ekki vín. George fór í frí til Spánar fyrir stuttu með konu sinni, og datt í það áður en hann fór. Læknirinn óttast því að hann drepi sig með þessari drykkju á Spáni....